Hin svokölluðu "hryðjuverkalög" voru samþykkt árið 2001. Fullt heiti laganna er "
Anti-terrorism, Crime and Security Act 2001".
Lögin eru gríðarlega fjölbreytt og ná m.a. yfir kynþáttafordóma, fordóma gegn trúuðum/vantrúuðum, samstarf við ESB í afbrotavörnum af ýmsu tagi, mútur, spillingu og eignafrystingu.
Þegar eignir útibús Landsbanka voru frystar, snemma í október 2008, var stuðst við
4 og 14 grein kafla 2 í nefndum lögum.
Sá kafli er endurunnin úr eldri lögum, frá 1964.
Þessi tiltekni kafli er síður en svo beintengdur hryðjuverkum. Það er reyndar svo, að orðin "
anti-terrorism" og "
terrorism" er hvergi að finna í lagakaflanum.
Þegar lögin fóru gegnum
lávarðadeildina á sínum tíma, var lögð fram breytingartillaga þess efnis að kaflinn yrði beintengdur hryðjuverkastarfsemi.
Þeirri tillögu var hins vegar
hafnað, því ljóst var að lögin gátu átt við margskonar tilfelli sem í engu komu hryðjuverkum við.
Álit höfundar:Skömmu eftir frystingu Landsbanka tóku ýmsir fjölmiðlar upp á því að fjalla um lögin sem "
hryðjuverkalög" (þ.e. "
terrorism laws"). Íslensk stjórnvöld gripu þetta samstundis og hugðust nota sér til framdráttar. Stór hluti þjóðarinnar spilaði með, líkt og sjá má á vefsíðunni
indefence.is.
Að mínu mati var hér um stórkostleg mistök að ræða. Til skamms tíma litið kann þetta að hafa litið gáfulega út, en um leið og fjölmiðlar missa áhuga á stórskemmtilegum "hryðjuverka" fyrirsögnum, er hætt við að þeir kynni sér málin til hlýtar. Íslensk stjórnvöld hefðu þvert á móti átt að hörfa bakvið þau bresku og afneita hryðjuverkastimplinum þegar í stað.
Þá þegar nefndur undirskrifalisti (indefence.is) verður afhentur breskum stjórnvöldum mun móðgunarþörf Íslendinga virka sem blaut vatnstuska framan í andlit þeirra sem tapað hafa miklu á því að treysta íslenskum kaupsýslumönnum og eftirlitskerfi landsins. Og þeir eru ekki fáir.
Því skilaboðin eru skýr, þó þau séu ekki þannig meint.
Okkur er alveg sama um ykkur - þið kölluðuð okkur (ekki) hryðjuverkamenn og við erum móðguð.Ég skil hugmyndina á bakvið indefence.is og veit að hún er önnur en birtist í textanum hér að ofan. Hún er í eðli sínu ágæt. Jafnframt virði ég það að fólk hafi fallið fyrir áróðri fjölmiðla og íslenskra stjórnvalda.
Engu síður tel ég þennan undirskriftalista hrikalegan afleik.
Vonandi hef ég kolrangt fyrir mér.