Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
Bretum gert tilboð
13/11 2008 02:19 / 2008
Löglærðir Íslendingar hafa fullyrt að kröfur Evrópulanda á hendur stjórnvöldum séu andstæðar EES samningnum. 

Í því ljósi er lausn Icesave deilunnar einföld.

Bretar hafa boðist til að lána Íslendingum fyrir því sem Bretar telja Íslendinga skulda.  Sú (meinta) skuld virðist umfangsmest.

Þá er einfaldlega að taka því boði, með þeim fyrirvara að Íslendingar ætli sér að láta dómstóla skera úr um réttmæti krafna.  Meðan það mál er rekið óska stjórnvöld þess að lánið sé fryst, eða til vara, að greiddar verði lágar afborganir til málamynda meðan málaferli standa yfir.

Það tilboð til breskra stjórnvalda þarf að gera opinberlega og með fréttatilkynningu forsætisráðuneytis til allra helstu fjölmiðla vesturlanda.
Ef tilboðið er orðað á réttan hátt, af auðmýkt og þakklæti, geta íslensk stjórnvöld sýnt fram á í eitt skipti fyrir öll að þau hyggist greiða allt sem þau sannarlega skulda en vilja, eðlilega, fá staðfestingu á að kröfurnar séu lögmætar.
Íslendingar myndu að sjálfsögðu heita því að lúta dómsorði, jafnvel þó úrskurður yrði þeim óhagstæður. 
Ef eitthvað er að marka íslensk stjórnvöld er lítil hætta á því.

Ef Bretar hafna slíku tilboði, sem gert er á opinberum vettvangi, snýst valdataflið við á örskotsstundu og Ísland verður landið sem vildi gera rétt, en fékk ekki.

Ég ítreka; ef eitthvað er að marka íslenska lögspekinga og ráðherra, telst hættan af því að fara þessa leið lítil sem engin.  Lánið verður hvort sem er afskrifað fyrir dómi og kostnaður greiddur af Bretum.

Eða hvað?

Að frátaldri óhefðbundinni diplómasíu, velti ég fyrir mér hvort eitthvað mæli gegn þessari leið.

Jón Valur og Mats Wibe hafa ritað um svipaða leið.  Ég er ósammála ýmsu í þeirra skrifum, en grunnhugmyndin virðist ágæt.
 

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790