Í aprílmánuði birti dagblaðið Telegraph ítarlega grein hvar farið var yfir stöðu íslensku bankanna og því spáð að vandi þjóðarinnar gæti orðið til þess að IMF myndi ná fyrri stöðu sem lánveitandi til þrautavara. Svo vill til að þetta er í sama mánuði og Gordon Brown ráðlagði Geir Haarde að leita til sjóðsins.
Þorvaldur Gylfason óskar svara í Fréttablaðinu.
Stjórnin hefur ekki enn greint frá því, hvenær aðstoð gjaldeyrissjóðsins við Ísland í aðdraganda kreppunnar nú bar fyrst á góma. Þetta skiptir máli, þar eð tímabær aðstoð sjóðsins strax í vor eða sumar kynni að hafa dugað til að endurskipuleggja bankana og forða þeim frá hruni, enda lágu þá fyrir skriflegar tillögur um færar leiðir að því marki. (Þorvaldur Gylfason, 13.11 2008) Líkt og með svo margt annað sem stjórnvöld kjósa að fela fyrir almenningi, skiptir þetta gríðarlegu máli.
Í grein Telegraph segir m.a.:
In some ways, the problems facing Iceland are the financial crisis writ large: the country has built up a massive current account deficit by borrowing beyond its means for years. Worse still, its banking sector, which is similarly over-extended, is eight times the size of the overall economy. Should it topple, it seems unlikely the central bank would be able to mop up the mess.
In other ways, the country's plight is straight out of the IMF textbook. The krona is tumbling; it has fallen 18 per cent since March, forcing Reykjavik to hike interest rates to 15 per cent - a desperate move, given the wider economy is already stumbling. (Telegraph, 08.04 2008) Í stuttu máli sagt má fullyrða að fáir hafi efast um það í upphafi árs að Íslandi yrði á endanum að leita til IMF. En íslensk stjórnvöld afneituðu öllum vanda fram á síðasta dag og þorri íslensku þjóðarinnar trúði þeim.
Hér tjáir efnahagsráðgjafinn sig 3 - 4 dögum fyrir hrunið. Tryggvi Þór - BBC, 04.10 2008
Eftirfarandi eru svo digurbarkalegar yfirlýsingar Geirs Haarde frá því í sumar. Geir Haarde - Economist, 26.06 2008
Geir Haarde - Economist, 26.06 2008
Eitthvað hljóta þessir menn hafa brasað bakvið tjöldin - þó talað væri með þessum hætti. En hvað, nákvæmlega?
Annaðhvort var ríkið orðið svo háð tekjum frá bönkunum að þeir gátu ekki farið í gegn um þetta ferli eða þá að þeir voru svo hrokafulir að þeir héldu að þetta gæti ekki klikkað.
Hvort sem er sýnir fram stórkostlega vanrækslu við stöðugleika í fjármálakerfinu.
Hvort sem er sýnir fram stórkostlega vanrækslu við stöðugleika í fjármálakerfinu.