Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
Sjálfskaparvíti Geirs
14/11 2008 22:10 / 2008
Í upphafi október stóð Geir Haarde frammi fyrir að Bretar höfðu fryst eigur Landsbanka.  Hann átti hann tvo kosti.

Hann hefði getað óskað skýringa á viðkomandi löggjöf og, í framhaldi, útskýrt fyrir þjóðinni að klausurnar sem beitt var á Landsbanka væru í engu tengdar hryðjuverkum.  Beðið þjóðina að hlaupa ekki eftir æsifyrirsögnum fjölmiðla, heldur vera samtaka í að kynna heiminum hið sanna.
Fljótlega hefði áhugi fjölmiðla á hryðjuverkafyrirsögnum dalað.

En þetta gerði forsætisráðherra ekki.

Dallurinn var að sökkva og Geir skynjaði svokölluð "hryðjuverkalög" sem bjarghring fyrir sjálfan sig og flokkinn.
Leynt og ljóst ól hann á óvild í garð Breta og hreif þorra þjóðarinnar með.  Geir Haarde söng með fjölmiðlum; fullyrti þjóðin hefði verið stimpluð sem hryðjuverkamenn og snapaði svo vinsældir með að afneita þeirri forsmán.
Hann gaf ítrekað í skyn að lögin beindust sérstaklega gegn Íslandi og íslensku þjóðinni.  Þannig stimplaði hann það rækilega í þjóðarvitundina að illa rekið og eftirlitslaust útibú bankans væri ígildi þjóðarinnar og Ísland væri Landsbankinn.

En Geir fór framúr sér í áróðrinum.  Nú er gífurlegur fjöldi Íslendinga sannfærður um að þjóðin hafi verið sett á stall með hryðjuverkamönnum og margir tengja á þann hátt að ekki eigi að virða sjálfsögð lágmarksréttindi sparifjáreigenda sem lögðu fé í íslenska banka.  Slíkt sé eftirgjöf; kúgun.
Hvað ætli margir hafi kynnt sér löggjöfina?  Hversu margir hafa kynnt sér íslenskar hliðstæður, sem hlýtur að vera forgangsmál að breyta?

Það skiptir litlu hverslags samningum Geir nær hér eftir, það verður alltaf "kúgun" í hugum fjölda Íslendinga.  Geir er nú fyrirlitinn af hluta þjóðarinnar fyrir að láta "kúga" sig; aðrir hafa á honum skömm fyrir að bregðast ekki skynsamlega við í upphafi.

Bjarghringurinn reyndist vera sökka.
 
Gagnrýni (1)
1 14/11 2008 22:23
Sævar

Hvernig hefurðu það, Balli minn?
-Alltaf sami sjálfstæðismaðurinn..

Kv.

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790