Fyrra myndbandið hér að neðan sýnir hvað gerist þegar þjóð fær nóg. Stjórnvöld mættu líta á sem aðvörun. Þar má sjá óeirðir í London eftir að goðið hans Hannesar Hólmstein, Margaret Thatcher, kom á svokölluðum "Poll Tax" (1990).
Seinna myndbandið er tekið fyrir örfáum dögum síðan. Þó kreppan sé ekki (enn?) farin að bíta hér svo almenningur finni fyrir, mótmælir fólk að sjálfsögðu öfgakapítalisma og ríkisbubbunum sem stjórnvöld vilja bjarga.
Tekið skal fram að þetta er í Bretlandi; hvar lítil þolinmæði er fyrir því að stjórnvöld vaði á skítugum skónum yfir almenning.
Vinkona mín á miðjum aldri sem hefur aldrei verið pólitískt þenkjandi fyrr en nú, sagði eftir fundinn á Austurvelli í dag: Ef þeir hlusta ekki núna þá þarf ofbeldi.