Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
Mótmæli 1.0 - Mótmæli 2.0
15/11 2008 22:40 / 2008
Friðsöm mótmæli eru ákjósanleg svo fremi þau skili því sem þjóðin krefst.  Annars eru þau bara ofmetið kaffistofuspjall gegnum hátalarakerfi. 
Staðan á Íslandi er grafalvarleg og óásættanleg niðurstaða ef mótmælin bera ekki árangur; hvort sem blómum eða bareflum er beitt.

Stóra spurningin er; mætir fólk á Austurvöll til að sýna það sé reitt - og mun láta þar við sitja - eða eru mótmælendur almennt harðir á því að gefast ekki upp fyrr en ríkisstjórnin gefur eftir?

Því sagan sýnir að biðin gæti orðið löng.

Íslensk stjórnvöld hafa ágæta reynslu af að sitja af sér óþægindi.  Hingað til hafa þau getað treyst því 100% að þegnarnir gefist upp á endanum.  Í því ljósi óttast ég Hörður Torfason hafi rangt fyrir sér þegar hann segir stjórnvöld hræðast mótmæli lík þeim sem haldin hafa verið á Austurvelli síðustu vikur.
Ég held, þvert á móti, stjórnvöldum hugnist þetta fyrirkomulag ágætlega.

Þau treysta þjóðin gleymi því sem hneykslaði hana; gleymi afglöpum og spillingu sem er löngu ljós.  Þá tekur við tímabil hvar hvert það örskref sem stjórnvöld taka mun þykja fullgóð afsökun fyrir að mæta ekki í mótmælastöðu þá vikuna.  Jafnvel þó viðkomandi skref hafi ekkert með upphaf reiðiöldunnar að gera.  Bæti hvorki fyrir spillinguna, né þvingi menn til að taka ábyrgð á mistökum.

Það hentar stjórnvöldum ágætlega að bíða.

Því fáir eru fremri Íslendingum í gleymsku og íslensk stjórnvöld klárlega leiðandi í biðlist.

Að því sögðu vona ég sannarlega að það fólk sem mætt hefur til mótmæla síðustu vikur - og á virðingu þjóðarinnar skilið - nái eyrum stjórnvalda.  Það væri skelfileg niðurlæging fyrir íslensku þjóðina ef stjórnvöld hundsa kröfurnar algerlega og engar breytingar eiga sér stað. 

Vart þarf að taka fram að mótmæli væru þar með úr sögunni á Íslandi.

Ef uppfæra þarf Mótmæli 1.0 í útgáfu 2.0, þá verður bara svo að vera.

Því ef ekki núna, þá hvenær?
 
Gagnrýni (5)
1 15/11 2008 23:28
Það er nú frekar vont að uppfæra mótmælin frá 1.0 í 2.0 því það táknar einhverja valdbeitingu. Ghandisk mótmæli þurfa að vera á virkum degi svo einhver áhrif merkist - bæði til að ná í skottið á alþingismönnum og til að trufla umferð sem er óásættanlegt fyrir okkar ágætu stjórnvöld. Það táknar ALSHERJARVERKFALL - hvar er verkalýðshreifingin sem ætti að hafa forgöngu um slíkt.
Annað sem mér finnst eðlilegt er að krefjast þess að stjórnarandstöðuþingmenn hreinlega segi af sér þingmennsku og varamenn neiti að mæta fyrir þá. Eins og nú er halda þeir ríkisstjórninni og spillingarliðinu á floti. Er þingið starfhæft ef þriðjung þingmanna vantar og ef svo telst vera - munu þingmenn ríkisstjórnarinnar leyfa sér að starfa við þær aðstæður? Ef svo er þá er þingræðið lítls virði.
Sem sagt:
1) Krefjumst þess að stjórnarandstöðuþingmenn segi af sér þingmennsku (og reyndar helst allir þingmenn!).
2) Alsherjarverkfall á virkum degi og mótmæli á Austurvelli

Kveðja,
Ragnar
2 15/11 2008 23:53
Veðurstofan segir að það verði fínt veður á mánudag og svo aftur á fimmtudag. Ekki bíða endalaust - gera eitthvað strax!

R
3 15/11 2008 23:59
JR
,,...stjórnarandstöðuþingmenn hreinlega segi af sér þingmennsku og varamenn neiti að mæta fyrir þá"


Hvernig dettur þér í hug að einhver alþingismaður segi af ´ser ?

Það er ,,sama rassgatið" undir öllum þessum alþingismönnum !
4 16/11 2008 00:07
Uss, nei Ragnar. Mótmæli 2.0 eru einmitt það sem þú ert að tala um; sem er skynsamlegt.
Friðsöm mótmæli áfram, en hitta stjórnvöld fyrir þar sem það meiðir. Fjölmargar leiðir má finna til þess.

Í dag hittir þetta menn ekki fyrir - veldur þeim litlum sem engum áhyggjum.

Það er ekki fyrr en í útgáfu 4.0 sem ofbeldið kemur inn :-)

Vonandi þarf aldrei á það að reyna.
5 16/11 2008 00:10
1.des ber uppá mánudag í ár. Ég legg til, að Íslensk þjóð gefi sér „frí“ þann daginn og streymi út á stræti bæja og borgar.

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790