Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
bjorgolfsdefence.is
16/11 2008 14:46 / 2008
EF ég ætti eins og eina ósk, myndi ég óska þess að eftirfarandi klausa úr dagblaðinu NEI leiddi til rannsóknar á Íslandi - og vonandi ákæru í kjölfarið.

Viðmælandinn bætir því við að nefnd hjá OECD sem fjalli um peningaþvætti, hafi á nýlegum fundum fjallað sérstaklega um peningaþvætti gegnum íþróttafélög. „Annað dæmi af tveimur sem tekin eru á þessum fundum er fótboltafélagið West Ham.“ West Ham hefur verið í eigu Björgólfs Guðmundssonar, aðaleiganda Landsbankans, síðustu ár.
(Dagblaðið NEI, 16.11 2008)

Daginn sem Björgólfur fengist dæmdur fyrir brot á neðangreindum lögum, yrði það dagurinn sem hið skáldlega réttlæti næði hástigi.

is_terrorismlaw

Samkvæmt íslenskum skilningi skipta lagatitlar öllu máli, innihaldið er meira til skrauts og uppfyllingar.  Ef Björgólfur yrði dæmdur samkvæmt þessum lögum væri hann þar með stimplaður hryðjuverkamaður og ætti, samkvæmt "áreiðanlegum" heimildum, fullan rétt á bótum frá ríkinu.

Hversu margir myndu skrifa undir bjorgolfsdefence.is?
 
Gagnrýni (4)
1 16/11 2008 15:50
Ég heyrðu af þessari uppákomu á OECD fundi um aðgerðir gegn peningaþvætti.

Um var að ræða fulltrúa ákveðins lands sem voru með fyrirlestur um hvernig hætt væri við því að íþróttafélög væru notuð til þess að þvo peninga. Í glærupakkanum voru tvær fréttaúrklippur af kaupum á tveimur enskum knattspyrnuliðum, Chelsea og West Ham, með myndum af hinum nýju eigendum.

Fyrirlesararnir komu ekkert inn á hvernig þessar úrklippur vörðuðu umræðuefnið, eða nefndu að grunur lægi á því að þessir einstaklingar hefðu eitthvað óhreint í pokahorninu, en að sjálfsögðu var verið að gefa eitthvað í skyn.

Fólki sem þekkti til fannst þetta ekkert sérstaklega smekklegt, en augljóslega var verið að spila inn á Rússa-vinkilinn.
2 16/11 2008 18:21
Björgólfur er að sjálfsögðu saklaus nema annað sannist.

Þetta er misheppnað blogg fyrst ég þarf að útskýra það, en kersknin beinist síst að Björgólfi :-)
3 16/11 2008 21:16
Með innleggi mínu var ekki ætlunin að taka afstöðu til háttseminnar sem Björgólfur var bendlaður óbeint við á fundinum. Einungis að koma því að sem ég hafði heyrt um fundin, til upplýsingar um þetta tiltekna atriði í færslunni.
4 16/11 2008 21:22
Úppss.

Skil þig núna :-)

Hélt þú værir að skamma mig (skiljanlega) fyrir að sverta nafn Björgólfs án þess að sannanir lægju fyrir. Misskilningurinn er minn.

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790