Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
Gneistinn, Ástþór og Snorri
17/11 2008 01:57 / 2008
Var að lesa þessa ágætu upprifjun Óla Gneista og mundi þá eftir þegar ég fyrst heyrði af því að fjármálakerfi heimsins væri byggt á tölum á tölvuskjám; allt hjóm sem ekkert væri á bakvið.

Maðurinn sem þetta fullyrti heitir Ástþór Magnússon og var þá í sínu fyrsta forsetaframboði; sennilega árið 1996?

Svo skemmtilega vill til að ég hlýddi á þessa speki með félaga Snorra Ásmundssyni, sem síðar bauð sig fram gegn Ástþóri og öðrum grísum til forsetaembættis.  Hefði betur unnið þann slag, svona eftirá að hyggja.

Þetta var í Deiglunni - sal Kaffi Karólínu á Akureyri - muni ég rétt.  Ég hef öruggar heimildir fyrir því að við Snorri kusum báðir Ástþór það skiptið.

Kaffi Karólína, fyrir þá sem ekki vita, er besta kaffihús í heimi. 

Leiðandi í þægindum.
 

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790