Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
Tvær spurningar
17/11 2008 18:14 / 2008
Tvær spurningar sem blaðamenn "gleymdu" að spyrja (eða ég missti af).

Þið, stjórnmálamenn, hafið gengið hart fram í að afneita gerðum samingum við alþjóðasamfélagið á þeirri forsendu að neyðarástand ríki í landinu og ekki sé gert ráð fyrir fullkomnu hruni banka- og fjármálakerfis í reglugerðum.

a) Af hverju gilda tilvísanir í neyðarástand og hrun ekki þegar kemur að skuldum alþýðu Íslands?

b) Stendur til að leyfa almenningi að semja upp á nýtt um sínar skuldir, t.d. við íbúðalánasjóð og ríkisbankana, hvar fullt tillit verður tekið til gjörbreyttra forsenda?

----------

Ég vil færa það til bókar að mér gæti vart staðið meira á sama hvaða smákóngar í örflokkum segja af sér embætti, þó sumir þeirra hafi vissulega tekið þátt í að blása í blöðruna.

En enn sitja þeir sem stóðu vaktina síðasta ár og ríflega það.

Það er stórfréttin.
 
Gagnrýni (2)
1 17/11 2008 19:25
JR
,,Stendur til að leyfa almenningi að semja upp á nýtt um sínar skuldir, t.d. við íbúðalánasjóð og ríkisbankana, hvar fullt tillit verður tekið til gjörbreyttra forsenda?"

Meira að segja verkalýðsleiðtogarnir eru á fullu í að gera fólki eins erfitt fyrir og hægt er varðandi þessi mál !
2 17/11 2008 20:22
Og enn predikar Geir að fall bankanna hafi verið fyrir tilstuðlan einhverja utanaðkomandi afla sem enginn gat séð fyrir

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790