Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
Fjallkonan í ástarsorg
18/11 2008 22:56 / 2008
"Svo virðist sem að Svíarnir elski okkur ekki jafn mikið og hinir“ hefur E24 eftir ónefndum íslenskum ráðamanni.
(MBL 18.11 2008)

Ég veit ekki hvort þetta sé málið.  Munu íslensk stjórnvöld skora hátt með svona ummælum?

Morgunblaðið segir pirrings "farið að gæta hjá íslenskum ráðamönnum í garð Svía fyrir að draga lappirnar í málinu". 

Í þeim pirringi kristallast ógeðfelldur hroki íslenskra ráðamanna sem telja eðlilegt að stjórnvöld víða um heim setji Íslendinga ofar eigin þegnum.  Grímulaus frekja og tilætlunarsemi hefur einkennt bróðurpart þeirra samskipta sem íslensk stjórnvöld hafa neyðst í á erlendum vettvangi síðustu vikur.

Af hverju eiga Svíar að lána Íslendingum? 

Hafa íslensk stjórnvöld tekið rækilega til í stjórnkerfinu?  Hafa þau skipt út óhæfum embættismönnum?  Hafa ráðherrar sagt af sér?  Er til eitthvað "plan B"?  Er til eitthvað "plan A"?  Hvar eru fyrrum forstjórar íslensku bankanna þessa stundina?
Ber einhver ábyrgð á einhverju?

Það er ekki skrítið að Svíar geri kröfur.

Það er hins vegar stórundarlegt að IMF ætli að afhenda óhæfum stjórnvöldum fleiri hundruð milljarða og bjóða þeim að prófa aftur.  Það er hrein og bein fásinna.

Ást, ástleysi, vinir og óvinir, já. 

Þetta er erfitt líf.
 

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790