Heim | Samband | Leit | Höfundur
2008
Myndlíkingar
19/11 2008 00:45 / 2008
Fjölbreyttar myndlíkingar hafa tröllriðið umræðunni undanfarið; stundum finnst manni nóg um.

Ég rakst þó á eina sem mér finnst smellpassa varðandi ákveðna umræðu sem á sér stað í þjóðfélaginu.  Þarfnast varla skýringa við, en menn geta smellt á krækjuna og lesið meira, skilji þeir ekki punktinn.

Jón og Gunna eiga bíl. Hann fer yfirleitt í gang á morgnanna og kemur þeim hjónum oftast nær á milli staða, þó kemur fyrir að bíllinn virki ekki sem skyldi. Bílnum hefur ekki verið haldið við af kunnáttu og er því orðinn eilítið lúinn. Vélin er vanstillt, eyðir meira bensíni en hún gerði og brennir mikilli olíu. Viðhald bílsins er nokkuð kostnaðarsamt.

Hjónin taka eitt sinn ökuferð um bílasölu, sjá þar bíl álengdar sem lítur ágætlega út. Þau skoða bílinn þó aldrei nema úr nokkurri fjarlægð.

Þegar heim er komið upphefjast rökræður á milli hjónanna. Jón segir að bílinn á bílasölunni sé það sem þau þurfa. Þetta sé góður bíll, honum hafi verið vel viðhaldið og hann bili lítið. Síðast en ekki síst þá kosti hann ekki mjög mikið. Gunna segir hins vegar að þetta sé algjör drusla - meiri drusla en þau eru á núna. Á bílnum sé allt of hátt verð og hann ekki jafn vel með farinn og Jón vill meina. Síðast en ekki síst þá sé núverandi bíll þeirra meira en nógu góður, hann komi þeim á milli staða sem sé megintilgangur bíla.

------

Nú spyr ég: hvort þeirra hefur rétt fyrir sér? Er bíllinn á bílasölunni drusla eða eru þetta kostakjör sem eru í boði?
(Andri Valur 13.11 2008)

Þegar stórt er spurt!
 
Gagnrýni (1)
1 19/11 2008 22:02
Ekki gæti ég verið meira sammála þér um að þessar myndlíkingar eru yfirleitt full miklar. Í þessu tilfelli er púnkturinn reyndar það einfaldur að myndlíkingin skaðar ekki beint hér, en stundum finnst mér, í þessari kreppuumræðu allri að mikilvægir menn séu að reyna að fela fákunnáttu og skilningsleysi á hagfræði og öðrum mikilvægum málum þegar þeir tala um bruna og slökkvistarf, eða brotlendingar flugvéla o.s.frv. í staðinn fyrir gjaldþrot fyrirtækja, verðbólgu og atvinnuleysi og allt það sem er bókstaflega að gerast. Ómar Ragnarsson var alveg að tapa sér í slíkum líkingum í silfrinu um daginn og ég verð að segja, að þessar myndlíkingar hjálpa mér ekki rassgat að skilja hvað er eiginlega í gangi.

Gagnrýni?

Nafn:
Vefsíða:
Athugasemd (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Make the Revolution a parent of settlement, and not a nursery of future revolutions / Edmund Burke, 1790