Eftirfarandi er örstutt upprifjun á (broti af) því sem sagt var um EES samninginn á sínum tíma.
"Úti í Evrópu er þúsundir auðkýfinga, sem þegar líta hýru auga til fjárfestinga hér á landi. Það er fyrst fiskvinnslan því þeir reyna að komast inn bakdyrameginn, síðan fiskimiðin, fallvötnin, árnar okkar og að lokum, bæir, kot og höfuðból. Þetta allt munu þeir klófesta að lokum" (Matthías Björnsson, MBL 12.09.91 bls. 23)
"Erlendir risar í [bankarekstri, ferðaþónustu, fjarskiptaþjónustu, samgöngum, bæði skipa- og flugrekstri, tryggingastarfsemi, útvarps- og sjónvarpsrekstri og verktakastarfsemi], sem krefðust viðskipta- og athafnafrelsis á Íslandi í samræmi við samningana um EES, gætu hæglega skaðað svo innlenda starfsemi í þessum greinum, að því fylgdi stórkostlegt þjóðhagslegt tap, enginn gróði." (Hannes Jónsson, MBL 31.08.90 bls. 16)
"Það er furðulegt að sá flokkur sem kennir sig við sjálfstæði landsins skuli hafa innan sinna vébanda flesta af þeim mönnum sem vilja selja sjálfstæði landsins fyrir stundargróða." [...] "Ég tel inngöngu í þá ríkjasamsteypu jaðra við landráð. Ég kvíði engu um afkomu þjóðarinnar þótt hún standi utan við allt slíkt". (Sigurður Lárusson, MBL, 19.09.91 bls. 33)
"Gleymum ekki Íslendingar, að með samningi um evrópskt efnahagssvæði, EES, myndum við [...] að mestu flytja dómsvaldið til Belgíu og við myndum fljótt sjá að fjársterkir aðilar næðu hér tangarhaldi á hverju því sem hugur þeirra girntist." (Jóhannes R. Snorrason, MBL, 23.08.91 bls. 40)
"Ég sýndi hins vegar fram á það hér í blaðinu 31. júlí [1990], hversu hörmulegar afleiðingarnar af því gætu orðið fyrir okkur, ef Íslendingar á vinnuaflsmarkaði þyrftu að fara að keppa í eigin landi við vinnuafl frá láglaunasvæðum Evrópu, sem erlendu auðfélögin flyttu inn til þess að halda tilkostnaði í lágmarki en gróða firmanna í hámarki." (Hannes Jónsson, MBL, 31.08.90 bls. 16)
"Fjársterkir erlendir aðilar ættu auðvelt með að kaupa hér land - t.d. einn eða tvo eða þrjá Laxárdali -, Þeir gætu keypt margskonar sérstæk íslensk hlunnindi, þeir gætu keypt keypt [svo] íslensk fyrirtæki, þeir gætu hæglega komist bakdyramegin eða með leppafyrirkomulagi inn í íslenska fiskveiðilögsögu, fiskvinnslu, útgerð, orkuvinnslu og orkusölu svo dæmi séu nefnd." (Haukur Helgason, MBL, 11.08.92 bls. 14)
"Erlend stórfyrirtæki í sjávarútvegi myndu fljótlega hasla sér völl hér og færu þá létt með að leika á landann og kerfið, sem útsmognum fjárplógsmönnum einum er lagið". (Jóhannes R. Snorrason, MBL, 10.08.91 bls. 36)
"Þeir [forkólfar stéttarfélaganna] virðast loka augunum fyrir því að við erum að gerast aðilar að efnahagssvæði þar sem fast atvinnuleysi er um 10%. Með svipuðu lögmáli og vatnið rennur undan brekkunni hlýtur atvinnuleysi hér að aukast til stórra muna." (Páll Pétursson, umræður á alþingi 25.08.92)
"Þannig gætu Bretar, Spánverjar og Þjóðverjar keypt sér bakleið inn í fiskveiðilögsögu okkar, gert út skip sín að forminu til á Íslandi en lagt upp aflann í heimalandinu." (Hannes Jónsson, MBL, 31.08.90 bls. 16)
"Íslendingar ættu að hugleiða herskyldumöguleikann verði EB-aðdáendunum að vilja sínum." [...] "Íslenski utanríkisráðherrann staðhæfir að ekki sé um fullveldisafsal að ræða með samningi um EES. HVer tekur mark á þeirri yfirlýsingu?" (Jóhannes R. Snorrason, MBL, 10.08.91 bls. 36)
"Greint var frá því í DV nýlega, í þætti um viskipti, [svo] að hugsanlegur hagnaður okkar af EES-aðild væri um tveir milljarðar á ári [...] Fyrir þetta vilja sumir Íslendingar selja fullveldið" [...] "Íslendingar [munu] þurfa að stórefla landshelgisgæsluna verði af EES-samningi. Ófyrirsjáanlegur kostnaður yrði því samfara þótt nær ógjörlegt yrði að fylgjast með þeim fiskiflotum sem ryðjast myndu á miðin við Ísland." (Jóhannes R. Snorrason, MBL, 23.08.91 bls. 40)
"...að hingað komi hópar útlendingar frá EB löndum og taki t.d. tímabundna vinnu, sem hér býðst t.d. vegna stórra verka með þeim afleiðingum að Íslendingar missa af vinnu og yrðu þá að ganga um atvinnulausir" [...] "Meginhlutinn af því sem fram kom hjá utanríkisráðherra var í raun viðurkenninga á því að EES samningurinn eða drögin að honum hafi að geyma fullveldisafsal." (Jóhann Þórðarson, MBL 31.06.91 bls. 13)
"Með EES samningi hefðum við veitt 350 milljónum útlendinga hindrunarlausan aðgang að íslenskum vinnumarkaði ásamt búseturétti, rétti til þess að kaupa og reka fyrirtæki hverskonar, og rétti til þess að kaupa fasteignir ásamt gögnum og gæðum landsins..." (Jóhannes R. Snorrason, MBL, 10.08.91 bls. 36)
"Okkar fagra tunga, okkar fagra land og þessi góða þjóð - munu falla í gleymsku og dá" [...] "Ég hef heimildir fyrir því að nokkrir milljónamæringar í Þýskalandi séu þegar farnir að ræða um kaup á fossum okkar til stórvirkjana, bæði til sölu á rafmagni yfir Evrópu og til stóriðjuframkvæmda hingað og þangað um landið, spúandi eitruðu lofti í allar áttir" [...] "Við getum reiknað með lágmark 100 til 200 þúsund manns á einu bretti, jafnvel uppí 400 til 500 þúsund" (Matthías Björnsson, MBL 12.09.91 bls. 23)
|