Heim | Samband | Leit | Höfundur
Dómstóll - fúlt, en sanngjarnt
25/06 2009 21:10
Hefðu Íslendingar tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi til jafns við helstu nágrannaþjóðir á síðustu árum, gætu þeir hæglega dregið Breta fyrir alþjóðadómstólinn í Haag.

En svo er ekki.

Eftirfarandi er örstutt viðtalsbrot sem útskýrir vandamálið.


(RUV - Vikulokin/Þórdís Ingadóttir, sérfræðingur í þjóðarrétti, 20.06 2009)

Með því að hafna lögsögu alþjóðadómstólsins í Haag, hafa Íslendingar fyrirgert möguleikanum á að stefna öðrum þjóðum, nema þá aðeins þær samþykki.

Fúlt, en ljóslega sanngjarnt.

Svona vanda myndi smáþjóðin Malta ekki lenda í, því Maltverjar eru þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi.
 
Gagnrýni (10)
1 25/06 2009 23:13
Friðrik
Þetta er alveg rétt.

Það kostar alltaf mikið að vera svona einstök þjóð á meðal þjóðanna :)

Enda engin þjóð sem á svona mikið af snillingum miðað við höfðatölu :)

Við erum svo spes að það er alveg að gera út af við okkur...
2 26/06 2009 14:50
Það er ekki að spurja að hálvitaganginum í Íslendingum.
3 26/06 2009 19:38
Snorri
Skemmtilega kaldhæðið. Það er þó aldrei að vita nema núverandi ríkisstjórn kæri sig um alþjóðlegt samstarf og komi þessu og álíka hlutum í sómasamlegt horf, svona upp á framtíðina að gera...
4 27/06 2009 00:20
Doddi D
Það er ekki til nein sú löggjöf, né alþjóðasáttmáli að hann þvingi fátækan mann til að greiða tap efnaðs manns í öðru landi. Slíkur sáttmáli væri öndverður öllu siðferði og allri menningu og yrði settur á haugana sem heimskupör.Þeir sem tala fyrir slíku eru úr sambandi við alla mannlega visku og skynsemi.
5 27/06 2009 01:59
Doddi, Icesave var í ábyrgð Íslenskra stjórnvalda frá upphafi. Þetta er vitað og hefur margoft komið fram.

Því miður eru þeir til sem ekki hlusta, og ekki læra.
6 27/06 2009 10:12
Doddi D
Ég held Jón Frímann, að slík löggjöf standist ekki mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta er svo biluð hugsun.
7 27/06 2009 14:22
skattmann
Við þurfum að viðurkenna lögsögu Alþjóðadómstólsins í Haag undir eins.

Sé ekki að neitt sé að vandbúnaði með að stefna Bretum og Hollendingum þar í kjölfarið.
8 27/06 2009 16:45
HH
Við monntuðum okkur af því að vera næst ríkasta þjóð heims, svo ég skil ekki alveg Dodda þegar hann ætlar að stilla okkur upp sem fátæklingum en almenningi í Bretalnd og Hollandi sem efnafólki.
9 28/06 2009 19:18
Doddi D
HH. Ég er ekki viss að þessi röksemdafærsla þín vikti mikið í þjóðréttarlegu samhengi. Ég hef aldrei montað mig af því að Ísland væri ríkasta þjóð heims. Mér finnst óréttlátt að Hollendingar og Bretar eigi að komast upp með að passa ekki sinni eigin rass.
Þetta hrokatal um að hlusta, lesa og gaspra einskorðast við landráðaklíku Samfylkingarinnar, sem talar gegn þjóð sinni. Er eins konar fimmta herdeild á Íslandi.
10 30/06 2009 18:19
Ástæðan fyrir þessu er einföld, Sjálfstæðisflokkurinn, það hrokafyllsta batterí sem Ísland hefur alið.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections