Eyjan fjallar um hvatningu dómsmálaráðherra, þess efnis að lögfræðingar sæki um stöður við rannsókn íslenska efnahagshrunsins.
En líkt og sjá má á athugasemdum við fréttina eru lögfræðingar ekki hátt skrifaðir á Íslandi í dag; skiljanlega.
Ég þykist þó vita hægt sé að finna gott fólk í stéttinni, sem varla á skilið að vera dæmt út frá misgjörðum svörtu sauðanna.
Þannig dettur mér í hug lögfræðingur sem unnið hefur mikla sjálfboðavinnu frá hruni; komið upp merku heimildasafni um kreppuna og einu vandaðasta yfirliti yfir tengslanet íslenskra fyrirtækja og stofnanna sem finna má á veraldarvefnum.
Nú þykist ég viss um Elfur Logadóttir myndi uppfylla mennta- og reynslukröfur varðandi umrædd störf, verandi viðskiptafræðingur auk lögfræðimenntunar - og brennandi áhugi og hugsjón, líkt og sjá má hjá henni, hlýtur að vera plús.
Tekið skal fram ég þekki hvorki Elfi, né hug hennar til umræddra starfa, en mér sýnist hún dæmi um lögfræðing sem myndi rannsaka hrunið af krafti.
Þeir eru eflaust fleiri.

Furl
Facebook
Fullt af duglegu fólki sem hefur teki ástfóstri við málefni hrunsins, jú og spillingarinnar.
Heilbrigt að hafa hlutina upp á borði og ein leiðin til að vinna sig út úr þessu. Kveðja.
ég þakka hrósið. Reyndar held ég að ég uppfylli ekki skilyrðin til þess að vera sérstakur saskórnari í þessum málum eða saksóknari á hans vegum þar sem (smá pása á meðan ég staðfesti grunsemdir :) ...) ég uppfylli ekki skilyrði 7. tl. 1. mgr. 12. gr. dómstólalaga um starfstíma eftir útskrift - ég var svo lengi að drattast í gegnum námið.
Skv. frumvarpinu:
"Sérstakur saksóknari og saksóknarar við embætti hans skulu allir fullnægja skilyrðum til skipunar í embætti héraðsdómara."
Skv. lögum um dómstóla (1. mgr. 12. gr. 15/1998):
"Þann einn má skipa í embætti héraðsdómara sem fullnægir þessum skilyrðum:
1. Hefur náð 30 ára aldri.
2. Hefur íslenskan ríkisborgararétt.
3. Er svo á sig kominn andlega og líkamlega að hann geti gegnt embættinu.
4. Er lögráða og hefur aldrei misst forræði á búi sínu.
5. Hefur hvorki gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti né sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem dómarar verða almennt að njóta.
6. Hefur lokið embættisprófi í lögfræði eða háskólaprófi í þeirri grein sem metið verður því jafngilt.
7. Hefur í minnst þrjú ár verið alþingismaður eða stundað málflutningsstörf að staðaldri eða gegnt lögfræðistörfum að aðalstarfi hjá ríkinu eða sveitarfélagi, en leggja má saman starfstíma í hverri af þessum greinum."
(p.s., af því ég veit að bloggið er til að viðhalda íslenskunni þá beygist nafnið mitt: Elfur - Elfi - Elfi - Elfar)
Hef nú breytt þessu.
Verra þykir mér með kröfurnar; þær eru þá of strangar. Það er, önnur atriði (t.d. sannanlegur áhugi og eldmóður) ættu að vega upp á móti hnökrum annars staðar!
Verkstjórnarhlutann hef ég hins vegar og þekkinguna og greiningarhæfileikana :)