Heim | Samband | Leit | Höfundur
Samviskuspurning um Icesave
23/06 2009 01:11
Fyrir nokkru sögðu þingmenn Borgarahreyfingar frá fundi hvar spjallað var við hollenska samninganefnd um Icesave.  Þetta var meðan leynd hvíldi yfir samningnum.
Einn Hollendinganna var spurður hvort hann myndi samþykkja samning án þess að hafa séð hann. 

Svarið var heiðarlegt, "nei". 

Þetta taldi Borgarahreyfingin mikinn sigur fyrir þá sem vildu samninginn upp á borð.  Sem svo varð.

Samviskuspurning dagsins er ekki ómerkilegri, en henni er beint að þeim sem krefjast þess Icesave málið fari fyrir (ótilgreindan) dóm.  Í grunninn er það vissulega skiljanleg krafa, en ég velti þó fyrir mér hvort viðkomandi hafi hugsað hana til enda.

Ef Jón Steinar væri í sporum Breta og Hollendinga, myndi hann fara með málið fyrir dóm? 

Myndir þú, ágæti lesandi, spila með hagsmuni 500.000.000 manns, eingöngu til að sýna 300.000 manns fram á þeir hafa rangt fyrir sér?

Svari hver fyrir sig.
 
Gagnrýni (11)
1 23/06 2009 01:41
Íslendingar hafa ekki rangt fyrir sér í þessu máli. Slökktu bara á "Íslendingar-hafa-alltaf-rangt-fyrir-sér" sjálfstýringuni í tvær sekúndur og þá sérð þú það.

Hitt er svo annað mál að það er betra að semja í málinu. En þá verða samningarnir líka að vera með þeim hætti að þeir stefni ekki framtíð landsins í voða.

Ef þessar 500 milljónir vilja stefna Íslandi í hættu eigum við ekki aðra möguleika en að verja okkur.

E.s Annars verður þessi and-þjóðremba þín kjánalegri með hverjum deginum.
2 23/06 2009 04:11
Atli F.
Ég verð eiginlega að vera sammála Hans. Það liggur við að manni langi að brenna vegabréfið sitt eftir stuttan lestur á þessu bloggi.

En það er dónaskapur að tala niður til fólks. Þótt að það sé frá Íslandi og hafi skoðanir sem eru ekki alveg í takti við þínar eigin.

Þetta ættir þú að vita, búsettur í hinum siðmenntaða heimi, fjarri barbörunum á Íslandi.
3 23/06 2009 09:59
baldur
Tekið skal fram að næstsíðasta setningin í blogginu var sett inn af ástæðu. Ég gerði beinlínis ráð fyrir menn myndu festast þar og ekki geta svarað spurningunni sem lögð er fram.

Menn geta svo velt fyrir sér af hverju ég lagði þetta svona upp :-)

---

Varðandi and-þjóðrembuna og að tala niður til Íslendinga. Hef heyrt það áður.

Hef verið sakaður um slíkt í fleiru en einu stórmáli, hvar síðar hefur komið í ljós að ég hef haft rétt fyrir mér - "þjóðin" rangt (afsakið skort á uppgerðarhógværð).

Ég velti fyrir mér hvort umræðan á Íslandi sé virkilega svo fjölbreytt og þrungin mismunandi skoðunum að engin þörf sé á "and-þjóðrembu"?

Ég geri ráð fyrir Hans vilji ég skrifi bara til stuðnings málstað Íslendinga, burtséð frá því hvort það sé satt eða heiðarlegt.

En af slíkum röddum er einfaldlega nóg. Til slíkra radda teljast á að giska 99% íslenskra bloggara.

Með fullri virðingu, held ég mig við and-þjóðrembulegt niðurtal.

Lesendum er að sjálfsögðu frjálst að lesa eittvað sem betur fellur að þeirra skoðunum.

Satt best að segja yrði ég allra manna fegnastur ef lesendur létu sig hverfa og þetta blogg þannig sjálfdautt.
4 23/06 2009 13:32
Snorri
Ef farið hefði verið með þetta mál fyrir dóm, sem ég tel hið eina rétta, þá þyrftum við ekki að vera að karpa um þetta. Svo ekki sé talað um allt blessaða þingmennina okkar. Þetta er bölvað rugl allt saman og ég er orðinn hundleiður á þessari umræðu. Mitt atkvæði fer í dómstóla leiðina, jafnvel þó svo það þýði að við töpum á því.
E.s. og endilega halltu áfram þessari "and-þjóðrembu". Þú værir nú ekki þú sjálfur öðruvísi (en á móti) :-)
5 23/06 2009 16:24
og á sömu nótum: Hvar ætti slíkur dómstóll að hafa lögsögu ? í EFTA ? eða í ESB ? Bretland og Holland eru ekki í EFTA og Ísland er ekki í ESB. Einhverstaðar minnir mig að ég hafi lesið að Bretar hafi viljað fara með þorskastríðsdeiluna fyrir alþjóðadómstólinn í Haag en Ísland ekki viðurkennt lögsögu dómstólsins - eitthvað sem að bæði Bretar og Hollendingar gætu hæglega gert þar sem að búið er að gefa fyrir því fordæmi.

Eða ætti Ísland einfaldlega að setja upp fullkomlega hlutlaus og fagleg réttarhöld á íslandi...
6 23/06 2009 16:29
Snorri
Haldið þið ekki, að ef vilji væri fyrir hendi, að hægt væri að koma á dómstóli sem allir hlutaðeigandi aðilar sættu sig við? Er það ekki með þetta eins og annað, spurning um vilja?
7 23/06 2009 16:50
Fyrst við erum í samviskuhlutverkaleikjum. Heldur einhver að Bretar myndu taka á sig skellinn í sömu stöðu og Íslendingar eru?

Svarið er nei. Þeir hafa fengið þennan sama skell vegna lífeyrissjóðanna sem hrundu og barist með kjafti og klóm gegn ábyrgð sinni sem þó er heiðskýr og margdæmd.
8 23/06 2009 22:50
baldur
Þakka svörin.

Rétt Snorri, ég væri eins og eyðimerkursnákur í loðfeld færi ég að rita jákvætt :-)

Jón Hnefill hittir sem fyrr naglann á höfuðið.

Snorri, aftur: það er ekki vilji fyrir að fara með þetta fyrir dóm. Ég skil það mjög vel, þó ég samþykki það væri auðvitað ákjósanlegt fyrir Íslendinga.

Ragnar: Ég held þú hafir rétt fyrir þér að Bretar myndu reyna allt til að sleppa við slíkar skuldir (þó vil ég geta þess að Icesave eru smáaurar miðað við það sem breskur almenningur hefur ábyrgst fyrir bankakerfið í Bretlandi).

Ég held hinsvegar Bretar myndu borga á endanum, enda skiptir þá töluverðu máli að vera í sæmilegum málum á alþjóðavettvangi. Lífeyrissjóðsmálið (sem ég hef auðvitað heyrt af við og við í fréttum), er innanríkismál sem skiptir stjórnvöld máli á dálítið annan hátt. Kann þó ekki nógu góð skil á því til að geta tjáð mig um (hef þó áður lesið ágæta færslu þína varðandi það).
9 23/06 2009 23:13
Grímur
Af einhverjum ástæðum eru margir búnir að gefa sér að þetta mál vinnist fari það fyrir dómstóla. Það er lang í frá öruggt.

Hvers vegna eru menn að berjast fyrir því að gamblað verði með hagsmuni íslendinga út frá nokkrum dálksentimetrum í Mogganum sem næstum enginn hefur lesið og enn færri skilið?

En annars er þessi hugmynd um hlutlausan og faglegan dóm skipaðan Jóni Steinari, Berki og Þorsteini D ekki svo vitlaus.
10 24/06 2009 00:38
Truth
Baldur

Ekki láta þér detta í hug að hætta skrifa and-þjóðrembu greiningu þína.

Hún sýnir mikinn styrk og karakter. Vinur er sá er til vamms segir.

Við Íslendingar þurfum meira á gagnrýni nú að halda en nokkru sinni fyrr því nóg er af "já" fólki og aumingja við liði.
Það eru ALLIR lýðskrumarar landsins í þeirri deild núna.

Sjálfur skrifa ég ekki undir nafni vegna þess að ég bý á Íslandi og verð fyrir aðkasti ef ég geri það ekki.

Skoðanir mínar falla ekki að fjöldanum og lýðskrumurunum landsins.

Þeta sýnir að Íslendingar hafa ekkert lært af hruninu því þeir eru jafn blindir á sjálfa sig, ábyrgð sína og gjörðir eftir sem áður.
Það eina sem hefur breyst er að nú eru allir útlendingar hálfvitar og í herferð gegn lítilli varnarlausri þjóð og íslenskir viðskiptamenn eru ALLIR glæpamenn (áður voru þeir hetjur).

Við vorum, þjóðin, vorum alsæl á meðan svikamillan gekk upp og þolum EKKI að vera kallaðir þjófsnautar sem er það sem við vorum í raun. Við viljum líka að aðrir beri ábyrgð á okkur þegar illa gengur.

Fyndið þjóð kannski en sorgleg um leið.

Ef menn hefðu verið vakandi áður og haft smá snefil af gagnrýnni hugsun þá hefðu þessar hörmungar aldrei getað átt sér stað í þeim mæli sem þær urðu.

Almenningur allur telur sig EKKERT hafa gert rangt og ekkert hafa vitað og aldrei hafa fengið neitt út úr falska góðærinu.

Það er lygi. Nánast enginn kvartaði og allir lifðu blekkinguna í botn. Við vorum klárust, best, ríkust. Ísland stórasta þjóð í heimi- dæmið.

Ég held að allt þetta sem er að gerast verði til góðs því þetta er nauðsynleg en sársaukafullt þroskaferli sem við sem þjóð þurfum að ganga í gegnum.

Siðferðiskennd þjóðarinnar er líka á frumstigi eins og kemur fram í allri umræðu varðand til dæmis Ice-Save og mat þjóðarinnar á eigin gjörðum.

Ég veit (eins og allir sem vilja vita) að við bæði verðum og eigum að skrifa undir þessa samninga. Ef við gerum það ekki þá fyrst byrjar hér alvöru djöfull og dauði.

Mitt mesta áfall síðan í október 2008 er að sjá hversu þjóðin er illa menntuð, með slæmt siðferði og hrokafull.

Það er verið og það á að kenna svona fólki lexíu.
11 24/06 2009 13:19
Sæll aftur.

Það er rétt að Bretar myndu vafalaust borga á endanum en, og hér er stórt og mikilvægt en, fyrst myndu þeir grípa til allra mögulegra varna. Og þær varnir myndu ekki hafa stórkostleg áhrif á pólitíska stöðu þeirra. Hún er álitinn sjálfsagður réttur, meira að segja forhertra glæpamanna.

Hver veit nema dómsstólar kæmust að því í tilfelli bankahruns (eins og virðist ætla að verða lendingin með lífeyrissjoðina) að ábyrgðin sé skipt?

Það eru ekki svokallaðar „siðaðar þjóðir“ sem refsa smáríki fyrir að grípa til varna. Það er eitthvað allt annað og ósiðlegra.

Ísland á ekki að hverfa á bak skyldum sínum en það á að fá staðfest hvort eðlilegt og sanngjarnt sé að ábyrðarákvæði gildi um hrun (sem engin þjóð gæti líklega fármagnað ef til þess kæmi án stórkostlegra afleiðinga fyrir lífskjör) og hvort ábyrgðin sé líka fármálaeftirlita landanna sem reikningarnir voru í.

Ísland hefur engu að tapa réttarfarslega sér. En svo virðist sem stórþjóðir ætli að gera landinu það pólitískt ómögulegt að verja sig, þrátt fyrir að þau hafi og myndu vafalsust áfram áskilja sér þann sama rétt.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
how to buy viagra | viagra pills | cheap viagra canada