Endalausar ávirðingar um "svik við kjósendur" hafa verið áberandi - og þreytandi - eftir alþingi afgreiddi ESB málið.
Mér sýnist vandamálið víðtækara en einstakir þingmenn og ráðherrar. Þannig virðist mér flokkarnir sjálfir þurfa endurskoða hvernig samþykktir verða til og lýðræðið að baki slíkum textum.
Því má velta fyrir sér, hvort landsfundir séu sannarlega að skila stefnu í samræmi við vilja kjósenda tiltekinna flokka?
Þannig hef ég efasemdir um að Ragnheiður Ríkarðsdóttir hafi svikið kjósendur Sjálfstæðisflokks, með stuðningi við aðildarviðræður. Meirihluti flokksmanna hafa verið hlynntir viðræðum í hverri einustu skoðanakönnun Capacent Gallup frá árinu 2004, utan febrúar 2006; í hverju felast svikin?
Sveik Ragnheiður kjósendur Sjálfstæðisflokks, eða sveik hún stefnumörkun sem klárlega var ekki vel unnin og náði ekki utan um raunverulegan vilja sjálfstæðismanna? Því sá vilji hefur komið skýrt fram síðustu ár - þeir vilja í aðildarviðræður.
Í öðrum flokkum er svipaða sögu að segja. Þannig hefur stuðningur við aðildarviðræður innan Vg verið meiri en andstaðan, í langflestum könnunum frá 2004. Það er ekki síst innan þess flokks sem talað er um svik.
Spurningin hlýtur að vera; hvað gerist á landsfundum og í annarri stefnumörkun sem snýr vilja kjósenda á haus?

Á myndina vantar skoðanakönnun frá febrúar 2009, hvar 54.2% kjósenda Sjálfstæðisflokks vildu fara í aðildarviðræður, 38.2% voru á móti og könnun frá desember 2008, hvar 55.8% voru hlynntir viðræðum en 26.4% voru á móti.

Furl
Facebook
kv. Heilbrigð skynsemi
Nei, þessi útúrsnúningur er frekar langsóttur.
Getur skoðað gröfin hér: http://www.si.is/malaflokkar/althjodlegt-samstarf/evropumal/skodanakannanir/
Annars finnst mér fyndið þegar andstæðingum ESB finnst í lagi að vitna í skoðanakannanir sem hafa verið gerðar eftir hrunið og sýna andstöðu við ESB en ekki tala um eldri kannanir. Persónulega held ég að eldri kannanir sýni betur viðhorf þjóðarinnar til ESB - sérstaklega þar sem að þær eru teknar á venjulegum tíma en ekki við óvenjulegar aðstæður eins og nú.
Þín var sárt saknað.
Þetta er mjög góð greining hjá þér og mjög tímabærar pælingar.
Hvað varðar Pál og hans comment þá held ég að menn verði bara að sætta sig við að sá maður lifir í öðrum heimi en við hin og er alls ekki málsmetandi í neina alvöru þjóðmálaumræðu. Hann ber ekki að taka alvarlega og skoðanir hans eru þekkt stærð sem hann getur þó ekki staðið undir í raun með rökrænum hætti.
Sumu fólki líður best illa :)
Vissulega geta flokkar ákveðið að breyta stefnu sinni eftir vilja kjósenda sem fram kemur í skoðanakönnun. Eftir stendur hins vegar að opinber stefna flokksins er ekki tilkynnt af Gallup - og gæti þá breyst á milli mánaða - heldur ákveðin á flokksfundum.
Guðlaugur Þór flokksbróðir Bjarna bloggar svo í dag undir fyrirsögninni: "Íslendingar fá ekki að greiða atkvæði um ESB samninginn!", en segir þar samt í fyrstu málsgreinum "Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla fer þannig fram að þjóðin kýs um væntanlegan samning" http://pressan.is/pressupennar/LesaGudlaug/-islendingar-fa-ekki-ad-greida-atkvaedi-um-esb-samninginn
Guðlaugur leggur þarna Bjarna að velli því hann nær því að vera ósammála sjálfum sér innan þriggja málsgreina en það tók Bjarna heila klukkustund.