Heim | Samband | Leit | Höfundur
Tilgangslaust tuð út í horni
06/07 2009 20:04
Egill Helgason ritar stutt blogg um stórkostlegt gáleysi eftirlitsaðila á Íslandi.

Í fyrstu athugasemd er Seðlabankinn afsakaður og þess getið hve ágætlega hann stóð sig í að vara FME og stjórnvöld við.

Nú ætti ég sjálfsagt að beygja mig í lotningu yfir meintum "viðvörunum" Seðlabanka, en velti samt fyrir mér hver tilgangur þeirra var?
Ber mér að sýna því áhuga sem óhæfir embættis- og stjórnmálamenn voru að gaufa á Íslandi í prívatsamtölum og á týndum minnismiðum?

Auðvitað ekki.  Það skiptir ekki minnsta máli.

Sömu óhæfu embættis- og stjórnmálamennirnir auglýstu styrk og öryggi íslenska bankakerfisins í eyru breskra viðskiptavina, vitandi að allt var á leið til fjandans.  Fram á síðasta dag!

Tímasetningar hollensku reikninganna sýna jafnframt, svo ekki verður um villst, að þarlendir innistæðueigendur voru beinlínis rændir með vitund, vilja og stuðningi íslenskra stjórnvalda.

Hinar svokölluðu "viðvaranir" náðu aldrei þeim árangri að látið yrði af rányrkjunni, svo þeim hefði allt eins mátt sleppa.  Þær voru tilgangslaust tuð út í horni.

Dálítið eins og þetta blogg.
 
Gagnrýni (2)
1 06/07 2009 23:12
JR
Baldur.

Getum við ekki farið fram á þeir einstklingar sem voru í opninberum embættum beri sjálfir persónulega ábyrgð á þesum gjörðum ?

Jú, þeirra laun miðuðust við hversu ábyrgðin var mikil í þeirra embættum !
2 07/07 2009 02:41
skattmann
það hefur komið fram að forstjóri FME leyfði opnun útibúsins í Hollandi uppá sitt einsdæmi. Málið fór hvorki fyrir stjórn FME né til Viðskiptaráðherra.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections