Heim | Samband | Leit | Höfundur
Treysti Sigurjón Sjálfstæðisflokki?
14/06 2009 16:49
Skemmtileg tilviljun að Sigurjón Þ. Árnason undirritar þekkt skuldabréf sama dag og þáverandi dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, mælir fyrir frumvarpi um sérstakan saksóknara á alþingi; 21. nóvember, 2008.

Treysti Sigurjón því aldrei yrði kafað djúpt í eigin óreiðu?

Treysti Sigurjón kannski 25 milljón króna styrkur til Sjálfstæðisflokks, sem hann ákvað upp á sitt einsdæmi*, dyggði til að dekka málið, ef upp kæmist?

Og hvað með lögfræðinginn, sem virðist hafa hætt orðspori sínu sem fagmaður, ef ekki starfsréttindum?

Tímasetning skjalsins vekur upp spurningar; bíræfnin er hreint ótrúleg.

Annað hvort höfðu mennirnir góða ástæðu til að ætla ekki yrði kafað djúpt í þeirra mál eða fyrri gjörningar hafa verið með þeim hætti að örlitlir fjármagnsflutningar úr lífeyrissjóði voru líkt og stela sleikipinna frá barni.

* Tekið skal fram að ekki hafði komist upp um styrkinn á tíma skuldabréfsins.
 
Gagnrýni (4)
1 14/06 2009 18:15
EJ
Það er reyndar spes að þetta mál sé að koma upp svona seint. Kannski er bara verið að láta hann líta illa út vegna orða hans um Icesave?

(reyndar er þetta líklega of mikil paranoia hjá mér)
2 14/06 2009 19:28
TH
Sjálfstæðisflokknum og Birni Bjarnasyni tókst að eyðileggja réttarkerfið á Íslandi á innan við tveimur áratugum. Hér er ekkert réttarríki. Þess vegna talaði Geir H. Haarde líka um Hvítbók sátta líkt og í S-Afríku sem einnig var án réttarríkis.
3 14/06 2009 21:38
Allavega ágætt að upp komst - og þar sem skuldabréfin eru tvö, hvor tengd sínu húsi, er nánast (ef ekki algerlega) útilokað að um mistök hafi verið að ræða.

En ef við ætlum að kafa í paranojupakkann finnst mér eiginlega líklegra að ætlunin sé að grafa undan lögfræðingnum sem birtir þessa líka skemmtilegu grein gegn Evu Joly akkúrat á sama tíma. Sigurjón var mikið og oft búinn að tjá sig um að eignir Landsbankans myndu duga, það var ekkert nýtt þar á ferð.
4 14/06 2009 22:32
Doddi D
Það er fróðlegt að vita hvort þetta plagg er ekki einmitt til að dekka eitthvað sem löngu var búið að gera. Af hverju var miðað við vísitölu í september fyrir lán tekið í lok nóvember? Var kannski búið að taka sér þessa peninga mörgum mánuðum fyrr?

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections