Heim | Samband | Leit | Höfundur
Vaxtakjör elítunnar?
13/06 2009 12:10
Í skjalinu hér að neðan birtast upplýsingar sem almenningi kann að þykja fróðlegar.  Svo virðist sem veðskuldabréfið, sem samið er af landsþekktum einstaklingi fyrir enn þekktari einstakling, sé vaxtalaust með öllu (vextir reiknast frá og með deginum sem skuldin er greidd að fullu).  Svona viðskipti flokkast líklega sem "tær snilld".

skuldabref01Skjalið er birt í heild sinni á bloggsíðu Ragnars Þórs (MBL) og vísað í nokkrum sinnum í athugasemdakerfi Eyjunnar.  Smellið á myndina til að stækka.

En hvar eru nú fjölmiðlar?

Skjalið hlýtur að teljast einhverra dálksentimetra virði, hvernig sem á er litið.

a)  Skjalið er hugsanlega falsað; það er tiltölulega auðvelt að færa inn rangar upplýsingar í PDF skjal og láta líta út fyrir svona hafi þetta verið.  Ef þannig er í pottinum búið, er ábyrgð þeirra sem fölsuðu mikil.  Ekki þarf nema eitt dæmi um slíkar falsanir til að grafa verulega undan samstöðu um rannsóknir á meintum misferlum á Íslandi.

b)  Skjalið gæti hins vegar staðist og verið er að bjóða landsþekktum manni vaxtakjör sem þekkjast ekki á Íslandi - og þó víðar væri leitað.
Einhverjir hljóta gera athugasemdir við það.

Svör óskast.
 
Gagnrýni (4)
1 13/06 2009 13:36
Úbbs...

Þú ættir að greina frá nafni viðkomandi. Ekkert að þvi. Þá kemur í ljóst hvort þetta er falsað eður ei.
2 13/06 2009 13:56
ASE
Verð að viðurkenna að alltaf talið mig mjög full "bláeygða" (naive) og trúgjarna að upplagi. En hvarflar samt ekki eitt augnablik að mér að þetta skjal sé falsað. Svona er maður orðinn forhertur eftir atburði síðustu mánaða :-o

Það hlýtur samt að vera auðvelt að fá staðfestingu á þessu skjali. Eru þetta ekki opinber gögn á Íslandi? Geta fréttamenn ekki farið til viðkomandi stofnunar og fengið að sjá frumskjalið? Vona að einhver hér sem þekkir til þessara mála og geti upplýst okkur um það?
3 13/06 2009 14:10
Baldur
Nöfnin birtast hjá þeim sem skúbbaði. Ég tel það duga, ekki síst í ljósi Lúkasar :-)
4 15/06 2009 15:29
Einar Jón
Á myndinni er gjalddagi 1. afborgunar skráður 2009 (undir bleika reitnum).

Þýðir það að lánið muni safna dráttarvöxtum í 19 ár, eða er þetta algjörlega marklaus dagsetning?

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections