Heim | Samband | Leit | Höfundur
Aðkoma Evu Joly
19/02 2010 13:00
Upp er sprottið rifrildi um Evu Joly.  Dálítið afmarkað, því tekist er á um hvort Eva sé að vinna Íslandi gagn eða ógagn.  Evu hefur verið plantað í túnfótinn og um hana skal rifist.

En aðkoma Evu að Icesave er hvorki barátta fyrir hagsmunum Íslands, né gegn þeim.  Eva hefur verið fullkomlega heiðarleg með það.  Í Silfri Egils tók Eva sérstaklega fram hún væri þar sem þingmaður ESB.

Eva, og samflokksmaður hennar Alain Lipietz, hafa barist kröftuglega fyrir sam-evrópsku eftirliti með fjármálakerfi álfunnar, en Bretar verið heldur neikvæðir.
Augljóst er hve vandamál Íslands eru Evrópuflokki Evu mikilvæg, í þessu samhengi.  Komi flokkurinn höggi á Gordon Brown, gæti það verið stórt skref í átt að þeirra draumum.  Icesave er vopn sem græningjar hljóta að beita.

Sú er aðkoma Evu og Alain að Icesave.

Í nýrri grein þess síðarnefnda skín þetta í gegn.  Markmiðið er að búa til sem  mestan ágreining og Lipietz hikar ekki við að ýkja og hallar jafnvel réttu máli.  Það að greinin birtist þegar horfði til sátta í málinu, er auðvitað ekki tilviljun.  Sátt hugnast varla græningjum.

Ítrekað skal að hvorki Eva né Alain hafa sérstaklega falið sannleikann um aðkomu sína.

Það eru frekar íslenskir aðdáendur sem loka augunum.  Kannski því þeim þykja hagsmunir græningja og Íslands fara ágætlega saman þessa dagana.  Fullyrðing sem ég er ósammála, rétt eins og Björn Valur, en í þessu samhengi skiptir það ekki máli.

Mestu skiptir að Eva er á launum sem Evrópuþingmaður við að framfylgja stefnu síns flokks.  Það að mörgum líki málflutningurinn í dag, þýðir ekki að næsta barátta Evu þyki henta hagsmunum Íslands jafn vel.

Í sjálfu sér er allt í lagi að velta fyrir sér hvort aðkoma hennar sé góð eða slæm, en að búa til helgimynd af konunni og láta sem sérleg ást á Íslandi ráði orðum hennar og æði, er glórulaust.

Fyrst og síðast má gagnrýna málstað hennar harkalega - og verja af sömu hörku.

Sjálfur á ég í vandræðum með þetta, því þó græningjar séu vissulega að notfæra sér viðkvæmt ástand á Íslandi, eru þeir að gera það af ágætri ástæðu.

Með framtíðarhagsmuni Evrópu í huga.
 
Gagnrýni (2)
1 19/02 2010 13:17
marat
"Það að greinin birtist þegar horfði til sátta í málinu..." Hvenær horfði til sátta í málinu?

"Liepitz hikar ekki við að ýkja og hallar jafnvel réttu máli."

Þetta eru fullyrðingar sem þarf að rökstyðja, eigi þær að vera innlegg í einhvrja umræðu.
2 19/02 2010 16:41
Jóhannes Laxdal
Þetta liggur í augum uppi marat. Gallinn er bara sá að heimskir Íslendingar halda alltaf að ef útlendingar taka málstað okkar erlendis þá sé það vegna þess að þeim sé svo umhugað um okkar velferð. Þetta er mikill misskilningur, mikill meirihluti þessara meintu "Íslandsvina" eru að nota sér slæma stöðu í pólitísku orðaskaki. Þetta á við um erlenda stjórnmálamenn, hagfræðinga, ritstjóra og bloggara. Við þurfum að spyrja okkur hver sé þeirra raunveralega agenda áður en við tökum afstöðu til orða þeirra. Hins vegar er óþarfi að gera lítið úr þeirra pólitísku skoðunum þótt þær fari kannski ekki saman við okkar eins og Björn Valur og fleiri hafa gerst sekir um. Það er þeim til vansa

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
viagra 100mg price | cialis sales uk | buy cialis no prescription | order viagra | buy viagra online | viagra pills | cialis coupon | cheap viagra online | viagra professional online | cheap viagra uk | buy cialis online | canada viagra | viagra canada | discount viagra canada