Margt bendir til þess blóð muni renna í Íran á fimmtudag, en þá rennur upp 22. dagur Bahman-mánaðar og hefðbundið að landsmenn haldi upp á afmæli hins íslamska lýðveldis. Hátíðarhöld verða þó varla áberandi í þetta sinn.
Samkvæmt LA Times munu allt að þrjár milljónir manna mótmæla í Tehran; stjórnvöld flytja nú stuðningsmenn til borgarinnar, en gengur hægt að smala, segir ónefndur heimildarmaður blaðsins.
Yahoo News segja hægst hafi á netsambandi í Íran vegna "bilunar" og fólki gengur illa að senda textaskilaboð í farsímum vegna "breytinga á hugbúnaði". Allt mun þetta lagast í næstu viku.
Eftir "hátíðarhöldin".
Tilviljun?
Á Radio Free Europe segir Golnaz Esfandiari yfirvöld í Tehran séu að skipta út ruslagámum úr járni fyrir plastgáma, en áður hafa mótmælendur kveikt í járngámunum og notað sem skjól gegn árásum lögreglu. Einnig munu ný-uppsett hátalarakerfi vinna gegn slagorðum meðlima grænu hreyfingarinnar.
Þegar er byrjað að handtaka þekkta andófsmenn.
Observer var með ágætt yfirlit yfir forsögu málsins um helgina, ólgan þarna virðist gífurleg. Ekki þarf mikið til að allt fari af stað og uppreisnin fái vængi.
Vikan verður þá appelsínugul og græn.
Í Úkraínu deyr appelsínugul bylting og græn fæðist í Íran - og kannski mætti blanda stórviðburðum frá Norður-Írlandi í jöfnuna.
My parents never could agree about my type of school.
My learning was all done at home, that's why I'm such a fool.
They've both passed on, God rest 'em, but left me caught between
That awful color problem of the Orange and the Green.
(The Orange and The Green; írskt þjóðlag)
Furl
Facebook