Ég hef ekki horft á Silfrið en hef lesið eitthvað af því sem Max Kaiser hélt fram. Líklega er best ég sleppi áhorfinu, mér hættir til að vera sérlega ókurteis á blogginu eftir að hlusta á svona menn.
En varðandi yfirlýsingar Kaiser - og annarra - um breska og hollenska innistæðueigendur vil ég varpa fram eftirfarandi:
1) Það skiptir ekki máli hvort viðkomandi innistæðueigendur voru gráðugir peningafíklar eður ei; þeir lögðu peningana inn á bankareikninga. Þeir gerðu það í trausti þess að innistæður væru tryggðar.
2) Ef viðkomandi innistæðueigendur hefðu viljað stunda fjárhættuspil, hefðu þeir ekki lagt peningana inn í banka.
3) Ég spyr þá sem telja breska og hollenska innistæðueigendur vitlausa fyrir að treysta yfirlýsingum íslenskra stjórnvalda um traust bankakerfi - hvað segir það um gáfur Íslendinga, sem höfðu snöggtum betri möguleika á að kynna sér hve traust íslensk stjórnvöld voru?
Tekið skal fram að hér er ég ekki að dæma - einfaldlega biðja um örlitla tengingu.
4) Icesave reikningana í Hollandi þekki ég ekki, en hér í Bretlandi voru þeir í besta falli samkeppnishæfir. Hér að neðan fylgir yfirlit sem spannar Icesave frá upphafi; gögnunum safnaði ég út frá ákveðinni dagsetningu, sem ég reyni svo að hitta á mánaðarlega - eða sem næst henni ef afrit var ekki til af viðkomandi degi.
Bestu sparnaðarreikningar Bretlands (samkvæmt moneysavingexpert.com / október 2006 - ágúst 2008).
27.10 2006
Icesave ekki á blaði
27.11 2006
Icesave ekki á blaði
28.12 2006
Icesave ekki á blaði
27.01 2007
Icesave ekki á blaði
26.02 2007
Icesave ekki á blaði
27.03 2007
Icesave ekki á blaði
29.04 2007
Icesave ekki á blaði
28.05 2007
Icesave ekki á blaði
29.06 2007
Icesave ekki á blaði
17.07 2007
Icesave ekki á blaði
25.08 2007
Icesave ekki á blaði
26.09 2007
Icesave ekki á blaði
27.10 2007
Icesave í 2-3 sæti í "Easy Access" (i.r. 6.30%)
HiSave efst (i.r. 6.41%)
28.11 2007
Icesave ekki á blaði
28.12 2007
Icesave ekki á blaði
25.01 2008
Icesave ekki á blaði
24.02 2008
Icesave ekki á blaði
26.03 2008
Icesave ekki á blaði
26.04 2008
Icesave ekki á blaði
Maí: upplýsingar vantar.
22.06 2008
Icesave í þriðja sæti í "Easy Access" (i.r. 6.05%)
Bradford & Bingey efst (i.r. 6.51%)
Icesave í þriðja sæti í "Fixed Rate Bonds" (i.r. 6.86%)
Bradford & Bingley efst (i.r. 7.00%)
Icesave efst í ISA (i.r. 6.10%)
Alliance & Leicester í öðru sæti (i.r. 6.00%)
25.07 2008
Icesave í öðru sæti í "Easy Access" (i.r. 6.30%)
Intelligent Finance efst (i.r. 6.40%)
Icesave í þriðja sæti í "Fixed Rate Bonds" (i.r. 6.86%)
Cahoot efst (i.r. 7.1%)
Icesave í öðru sæti í ISA (i.r. 6.10%)
HSBC efst (i.r. 6.25%)
02.08 2008
Icesave í öðru sæti í "Easy Access" (i.r. 6.30%)
Kaupthing Edge efst (i.r. 6.55%)
Icesave í öðru sæti í "Fixed Rate Bonds" (i.r. 6.86%)
HiSave efst (i.r. 7.20%)
Icesave í öðru sæti í ISA (i.r. 6.10%)
HSBC efst (i.r. 6.25%)
Engar upplýsingar eftir ágúst 2008
Heimild: moneysavingexpert.com / Way Back Machine.
Furl
Facebook
Nei, ég er ekki að "skrifa færslu um þátt". Ég var að skrifa blogg um ákveðna fullyrðingu sem miðlar hafa haft eftir Kaiser - svo tengi ég þá fullyrðingu við álíka fullyrðingar sem heyrst hafa á Íslandi síðasta árið - og bendi á aðrar hliðar málsins.
Hafi ég rangt fyrir mér varðandi þessa ákveðnu fullyrðingu Kaiser, væri gott að fá leiðréttingu fremur en misheppnaða tilraun til höggs.
Jóhannes; takk fyrir þitt innlit. Þú ert ljóslega ekki hrifinn.
Ég óttast ef ég ætlaði að gera þá kröfu á sjálfan mig að hvert og eitt blogg yrði ávallt að fjalla um allt sem ég hef áhuga á - yrðu bloggin óþægilega löng :-)
Takk fyrir innlitið Gunnar; sá reyndar aldrei þá mynd (muni ég rétt).
Þú sýnir fram á að svo var ekki.
Ég held að þú getir nýtt tíma þinn betur í að horfa útum gluggann á mannlífið frekar en þetta viðtal. Það er mun gæfulegra.
Þegar karlinn fór að tala um dauðarefsingarnar þá fékk ég alveg nóg. Hann er alveg snarklikkaður það fer ekki á milli mála.Hafi hann haft eitthvað til síns máls þá var það búið á þeirri stund.
Kannski að Ástþór verði næsti viðmælandi Egils.
http://business.timesonline.co.uk/tol/business/industry_sectors/banking_and_finance/article4906739.ece
Er orðin langþreytt á þessari endalausu leit að sökudólgum, öllu og öllum öðrum að kenna nema okkur sjálfum.
Ég spyr bara, hvern á að drepa og hver ætlar að taka að sér að drepa.
Kaiser finnst hörmulegt að bandarísk og bresk stjórnvöld séu að pína skattgreiðendur til að halda á lífi spilltu og og sjúku banka- og fjármálakerfi sem grasseraði eftirlitslaust sl. ár og lítur út fyrir að muni ekkert breytast. Það er margt til í því. Líka hárrétt að stjórnendur Landsbankans voru svo sannarlega partur af þessu óheilbrigða kerfi sem olli bankakreppu og bankahruni á Íslandi.
En núverandi Icesave deila snýst bara ekkert um þetta.
Þér til upplýsingar hafa vextir á innistæðum í helstu gjaldmiðlum, evrum ,pundum og dollurum, aldrei farið yfir 2% í íslenskum bönkum, nú eru þeir u.þ.b. 0,25-0,50%. Ef þú ætlar að fara að ljúga því að 6-7% innlánsvextir í bretlandi hafi ekki verið langt umfram það sem eðlilegt getur talist, þá verður þú að hnoða saman trúverðugari lista en þetta kjaftæði.