Heim | Samband | Leit | Höfundur
Icesave ævintýrið
15/03 2010 12:33
Mér barst eftirfarandi bréf, sem tekur skemmtilegan vinkil á hvernig bankastarfsemi hefði getað orðið ágætis aukabúgrein fyrir íslenskt efnahagskerfi, ef stefnan hefði verið sett á hógværð í stað heimsyfirráða.

----

Icesave ævintýrið


Í lok árs 2056 var starfsfólki Icesave útibús Landsbanka Íslands í Bretlandi haldin veisla til að minnast fimmtíu ára afmælis þessarar vel heppnuðu starfsemi Landsbankans á erlendri grund, en Icesave var stofnað í október 2006. Segja má að afmælisveislan hafi verið í anda bankastarfseminnar þessi fimmtíu ár og einkenndist hún framar öllu öðru af hófsemi og smekkvísi. Ekki var talin ástæða til að bjóða upp á heimsfræga skemmtikrafta til að leika listir sínar fyrir offjár, enda var álitið að að það væri fyrst og fremst vitundin um vandaða, varkára og skynsamlega bankastarfsemi í Bretlandi í hálfa öld sem myndi vekja og viðhalda ánægju fólks í þessu samkvæmi.

Icesave starfsemi Landsbankans í Bretlandi var tekið afar vel strax í upphafi. Almenningur lagði fé sitt á sparireikninga útibúsins í verulegum mæli og það gerðu einnig fyrirtæki, góðgerðastofnanir og bæjarfélög, með stærri upphæðum og í ríkara mæli en forsvarsmenn útibúsins höfðu dirfst að gera sér vonir um í hinni fyrstu varfærnislegu viðskiptaáætlun bankans.
Þessi frábæra þáttaka, strax í byrjun starfseminnar árið 2006, bar glöggt vitni um traust almennings og forsvarsmanna stofnana og fyrirtækja í Bretlandi til íslenskra bankamanna og íslenskrar fjármálastjórnunar og eftirlits. Reynslan undanfarin fimmtíu ár hefur sýnt og sannað að þetta traust var verðskuldað, enda hefur þess ávallt verið gætt að starfsemin í breska útibúinu, bæði netreikningadeildinni, svo og deild hefðbundinna bankaviðskipta sem sett var á stofn nokkru síðar, samræmdist góðum og viðurkenndum venjum í bankaviðskiptum, þar sem megináhersla er lögð á traust milli bankans og viðskiptavina hans og bankastarfsemi sem einkennist af ábyrgð og varfærni í meðferð fjármuna hinna fjölmörgu sem hafa treyst og trúað Icesave útibúinu fyrir sparifé sínu síðastliðna hálfa öld.

Forsvarsmenn Icesave útibús Landsbankans í London, Trausti Tryggvason og Mark Truebody, lýstu þeirri von sinni og væntingu að útibúið myndi næstu fimmtíu árin rísa undir því trausti og þeirri velvild sem breskir sparifjáreigendur, stofnanir og fyrirtæki hafa um svo langa hríð sýnt Íslandi og íslenskri fjármálastarfsemi. Icesave útibúið hefur vakið athygli sem fyrirmynd að vel heppnaðri bankastarfsemi landa í milli, og hefur eflt  traust samstarf og tiltrú milli þessara tveggja nágrannaþjóða, Bretlands og Íslands, og lagt af mörkum fjármuni til fjölmargra vel heppnaðra verkefna í báðum löndunum.

EF...!

En því er nú verr að flest ævintýri eru skrifuð í anda ímyndunar og óskhyggju og sagan sem sögð er hér að ofan hefði víst aldrei getað getað átt sér stoð í raunveruleikanum, enda þekkjum við öll hina raunverulegu Icesave sögu sem einkenndist af fljótfærni í stað vandaðra áætlana, gáleysi í stað varúðar, virðingarleysi fyrir eigum annars fólks í stað vandaðrar bankastarfsemi og glæpsamlegum tilhneigingum í stað grandvarleika.

Því er Icesave raunveruleikans, því miður,  mest í ætt við hryllilega martröð og eins fjarri og hugsast getur undurfögru ævintýri um vinsamlegt og vel heppnað samstarf grandvars og geðugs fólks af mismunandi þjóðernum.
 

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
buy cialis no prescription | viagra 100mg | cheap viagra online | cialis sales | buy real viagra | viagra pills | discount viagra | buy cialis | viagra professional online | cheap viagra | generic viagra canada | cialis coupon | order viagra online | canada viagra