Mikil spenna ríkir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu, sem væntanlega verður í upphafi næsta mánaðar. Þá munu Íslendingar ógilda lög um ríkisábyrgð og heimurinn breytast í kjölfarið. Að margra mati.
Líklegra er þó áhrifin verði í ætt við það sem Andy Warhol kallaði 15 mínútna frægð.
Tiltækið mun vissulega vekja heimsathygli og fjölmargir kveða sér hljóðs til stuðnings Íslendingum. Heróp munu berast úr fimm, sex eða sjö álfum og Bretum og Hollendingum blótað í bak og fyrir. Einstefna verður í greinaskrifum. Þetta liggur ljóst fyrir og þarf varla spádómsgáfu til að sjá.
Lífið verður gott.
Eftir fimmtán mínútuna frægð verður ástandið svo eins og áður; vont með versnandi horfum.
Því þegar menn fullyrða heimurinn bíði eftir "nei-inu" frá Íslandi, grípa þeir ekki sannleikann. Hann er sá, að vesturlandabúar hafa yfirleitt meiri áhyggjur af eigin táfýlu, en hvernig Íslendingar hafa það. Þó augum þeirra sé beint að Íslandi, eitt augnablik, skiptir það engu til langs tíma litið. Innan örfárra daga er meðalmaðurinn farinn að þefa af sokkunum sínum, með áhyggjuhrukkur á enni; Ísland orðið álíka mikilvægt og hái rafmagnsreikningurinn sem viðkomandi brjálaðist yfir fyrir fimm árum síðan.
Heilt yfir er - og verður - fólki á vesturlöndum nákvæmlega sama. Svo mun verða áfram. Greinarhöfundar með misgóðan grunn til afskipta, breyta þar engu. Stjórnmálamenn hræðast ekki greinarskrif - þeir hræðast kjósendur.
Svo má benda á, að þó breskum og hollenskum stjórnvöldum sé eflaust illa við atkvæðagreiðsluna á Íslandi, er ljóslega ýkt þegar talað er um "hræðslu". Ef verðandi Icesave upphlaup væri það erfiðasta sem viðkomandi stjórnvöld hafa þurft að sitja af sér, væri dásamlegt að vera pólitíkus.
Ágætt væri ef umræðan á Íslandi færi að miðast við raunveruleikann, í stað drauma um "íslenska alheimsbyltingu".
Hvernig ætla menn að bregðast við ástandinu, nákvæmlega eins og það er......og verður?
Það er það eina sem ég hef áhuga á að vita.
Furl
Facebook
Við getum ekki safnað undirskriftum og krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótann en líklegt má telja að 80% þjóðarinnar vilji breyta kerfinu.
Ég gæti vel trúað að afleiðingar risa stórs nei-s yrðu meiri en í fjótu bragði sýnist.
En mér finst atburðarrásin komin í algert óefni og alls óvíst hvert þetta leiðir.Umræðan er líka kominn í öngstræti. Ég er ekki alveg viss um að menn geri sér grein fyrir því, hve alvarleg staðan er.
En hvað er til ráða ? Ég tel stjórnmálamenn hérlendis og breska og hollenska félaga þeirra hvorki hafa umboð eða getu til að leysa þetta mál, hvað þá að ákveða hver á að borga brúsann.
Að mínu mati á að fara í rótina á þessu máli með aðstoð utanaðkomandi aðila - erlends hlutlauss dómsstóls. Dómstóls sem getur greint atburðarrás viðskiptaferlanna, orsökina fyrir því hvernig fór sem fór; kallað þá einstaklinga til ábyrgðar, þá sem voru valdir að þessu og ákveðið endurgreiðslur sem taka mið af ábyrgð aðila og loks af greiðslugetu íslenska ríkisins.
Teitur - ég yrði manna sáttastur ef "nei-ið" hefði víðtæk áhrif gegn siðlausum heimskapitalisma. En er jafnframt 99.9% viss um að þegar herópin deyja út verði staðan jafnvond eða verri en áður.
Í fyrsta lagi er búið að gelda "nei-ið" töluvert með betra tilboði. Ef pressað er á B & H stjórnvöld, benda þau einfaldlega á þá staðreynd. "Auðvitað sögðu Íslendingar nei við verri samningi en þeim sem liggur á borðinu!".
Í öðru lagi hefur fólk það almennt ekki jafn skítt og á Íslandi - hvað sem síðar verður. Fólk sem ekki glímir við sömu neyð, er ólíklegra til að fara út á götur og mótmæla.
Í þriðja lagi vita viðkomandi stjórnvöld nákvæmlega hvernig beina á kastljósi frá óþægilegum uppákomum. Við þekkjum þær leiðir.
Ég tel sem sagt fullvíst að herópin munu vara í stuttan tíma - nokkra daga í allra mesta lagi - en svo gleymi almenningur. Stóra "nei-inu" munu fjárfestar hins vegar muna eftir - og gæta þess að snerta ekki á Íslandi nema tryggja sig í bak og fyrir.
Sem er þá kannski ágætt?
Svona met ég þetta, en væri alls ekki á móti skapi að hafa rangt fyrir mér.
Td. nefndi þingmaður einn wikileaksskjalið af fundi ísl. og BNA því til staðfestingar. Eg hef lesið það skjal og sé eigi hinn minnsta vott um hræðslu B&H þar. Sé bara aðallega: Úff vesenið á íslendingum alltaf, það á ekki að hlífa manni o.s.frv.
Er ekki í rauninni lausnin á þessu máli að núverandi stjónvöld á íslandi fari frá - og Sjallar og framarar komist aftur í stjórn ? Málið dautt. Allir sáttir.
Hvernig sem það svo gerist nákvæmlega er svo annað mál.
Veit ekki, held að þarna spili inní sú nýjung að nú er hægt að lesa svo margt á internetinu. Í rauninni er sagt allt um öll mál á internetinu.
Ef valið er bara sem hentar ákv. sjónarmiði - þá geta menn farið að ýminda sér allskona hluti - og td. það að taka aðeins skrif sem jákvæð virðast ákv. sjónarmði eins og td. moggi er rakið dæmi um uppá síðkastið - þá er auðvelt að mynda stemmingu. Er það nefnilega.
Þannig að, umrætt mál er bæði verið flókið og einfallt. Margar hliðar.
Hysjaðu upp um þig skítabrækurnar og kynntu þér málið áður en þú byrjar að blaðra eins og fífl.