Heldur sýnist mér vanhugsað að leita til Bandaríkjanna varðandi Icesave. Þar má eflaust finna skilning á erfiðleikum Íslands, en varla vilja til að blanda sér í málið.
Í áratugi voru íslenskir stjórnmálamenn sem blóðsugur á Bandaríkjamönnum og svifust einskis í að kúga úr þeim fjármuni og stuðning í öllum vanda. Hrokinn var alger og hverri gjöf fylgdu kröfur um meira. Hótað og grátið á víxl.
Ummæli háttsettra í Bandaríkjunum, frá þessum tíma, sýna að menn voru oft og tíðum hundleiðir á frekjunni.
Í þá daga gátu Íslendingar þvingað Bandaríkin til afskipta í átökum við Breta. Með hótunum um vinslit og flótta í faðm kommúnista.
Talað var um ofríki hinna smáu; ógeðfellda kúgunartilburði íslenskra stjórnmálamanna. Háttsettir urðu að fallast á kröfurnar, því lega Íslands þótti mikilvæg.
En mönnum dreymdi um að segja Íslendingum að eiga sig.
Það er varla hægt að áfellast Bandaríkjamenn fyrir að segjast hlutlausir í deilunni.
Furl
Facebook
Sjálfsagt er að rannsaka þetta mál