Heim | Samband | Leit | Höfundur
Sópurinn til Sjálfstæðisflokks (revisited)
05/03 2010 17:27
Það telst líklega bölvaður hégómi að vitna í eigin orð, en ég er nokkurn vegin á sömu skoðun og í september 2009.

Ég er hins vegar sannfærður um stjórnin verði hvorki langlíf né auki líkurnar á sanngjörnu samfélagi til lengri tíma litið. 
Ég held reyndar, núverandi stjórn muni valda félagshyggju, jöfnuði, sanngirni - eða hvað menn vilja kalla það - óbætanlegum skaða.  Ríkisstjórnin mun gera þessum gildum hið sama og Borgarahreyfingin hefur gert smáflokkum.

Hið sama og snældan (eða nornin) gerði Þyrnirós.

Því hversu fagrir sem draumar Steingríms kunna vera, gleymir hann að kjósendur hafa sjaldnast langtímaminni.  Í augum flestra er grasið ávallt grænna hinum megin, hvað sem allri forsögu líður.  Þennan veikleika kunna "fagmenn" á sviði stjórnmála að notfæra sér, líkt og sjá má á sjálfstæðis- og framsóknarmönnum þessa dagana. 
Frasar þeirra falla í frjóan jarðveg; fortíðin er að gleymast.

Því legg ég til Jóhanna og Steingrímur rölti með skúringagræjurnar upp að Valhöll og skilji eftir við innganginn.  Láti kústana í hendur samnefnara hrunsins.  Sjálfstæðisflokkurinn á að laga til eftir sig undir vökulum augum almennings.
(Sópinn til Sjálfstæðisflokks 20.09 2009)

Tek sem sagt undir með Björgvin Val og Guðmundi.
 
Gagnrýni (4)
1 05/03 2010 20:28
JR
Baldur.

Þarna er ég sammála þér.

En vil bæta því við að sjálfstæðisflokkurinn sjái sóma sinn í þvi að greiða skuld sína sem er ICESAVE skuldin !
2 05/03 2010 22:01
Sæll Baldur.

Þetta er vissulega rökrétt; sá sem ældi í partýinu ætti að þrífa eftir sig.

En þetta var því miður ekki bara unglingapartý. Þetta var kókaínpartý. Og ef við líkjum okkur sjálfum (almenningi) við foreldra, þá eigum við fleiri börn og viljum eiga heimilið áfram. Í íbúðinni leynist nú æla bak við allar þiljur.

Það er vandalaust að þrífa gólfið, en þegar kemur að því að rífa veggina,hreinsa og endurreisa, þá er það því miður verk fyrir fullorðna.
3 05/03 2010 22:34
ASE
JR, persónulega finnst mér Sjálfstæðisflokkurinn skulda þjóðinni mun meira en bara Icesave skuldina :-o
4 06/03 2010 00:59
Kristján Kristinsson
Góð upprifjun, ég hugsa oft og iðulega um þessa færslu.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
cheap viagra | cheap viagra online | viagra pills for sale | canada viagra | cialis sales online | cialis coupon | viagra 100mg price | cialis no prescription | buy cialis | discount viagra canada | viagra canada | real viagra | order viagra online | viagra professional