Heim | Samband | Leit | Höfundur
Animal's People e. Indra Sinha (4/5)
Bækur
Animal´s People Animal's People eftir Indra Sinha er stórkostleg bók.  Rakin er saga ungs drengs sem býr í indversku borginni Khaufpur, hvar flestir íbúanna eru annað hvort fársjúkir eða bæklaðir sökum eiturefnaslyss sem átti sér stað fyrir 20 árum í verskmiðju bandarísks fyrirtækis, "Kampani".  Hér er sterk tilvísun í indversku borgina Bhopal og þær hörmungar sem þar áttu sér stað árið 1984.

Drengurinn, Animal, fer um á fjórum því í slysinu sveigðust bein í bakinu á þann hátt að hann getur ekki rétt úr sér.  Hann krefst þess af öllum að þeir kalli hann Animal, enda er hann dýr, ekki maður.  Foreldrar Animal dóu í eiturefnaslysinu og er hann því alinn upp af franskri nunnu Ma-Franci sem hefur gleymt öllum tungumálum utan móðurmálsins og áttar sig ekki á að önnur tungumál séu til.  Þetta veldur Ma-Franci miklum erfiðleikum því hún telur alla í kringum sig vera vitstola aumingja sem þvaðri bara merkingarlaust bull.
Í söguna fléttast svo óendurgoldin ást Animal á ungri stúlku, Nisha, sem aftur er ástfanginn af leiðtoga þeirra sem berjast gegn "Kampani", Zafir; hetju Khaufpur.  Zafir leiðir málaferli gegn "Kampani", en þau hafa staðið yfir í 20 ár og lítið hefur gerst.  Dómskerfið í Indlandi virðist gjörspillt.
Þegar bandarískur læknir, Ellie, flytur svo til borgarinnar og opnar stofu sem býður ókeypis læknisaðstoð, hitnar töluvert í kolunum.  Hver er bandaríski læknirinn?  Vinnur hún e.t.v. hjá "Kampani"?  Er henni ætlað að safna "sönnunargögnum" þess eðlis að borgarbúar séu við hestaheilsu og grafa þannig undan málaferlunum?

Höfundur byggir Animal á frásögn af ferfættum dreng sem félagi hans sá - blandað við einstaka atburði úr lífi ungs drengs sem lenti í eiturefnaslysinu í Bhopal.  Hér má sjá minningargrein höfundar um þann dreng, Sunil Kumar.
Ef þú ætlar að panta þessa bók af Amazon, mæli ég með því að þú gerir það af vefsíðu höfundar (sjá tengil ofar), því þannig rennur hluti bókaverðsins til aðstoðar fórnarlamba Bhopal.

Það eina sem pirraði mig við bókina - og gerði það reyndar bara í upphafi - var hvernig enskan var rituð, væntanlega til að skapa stemmingu. "Going to Ma-Franci I'm" - "Animal, stupid you're" o.s.frv.  Þessi viðsnúningur vandist þó furðu fljótt.
 
buy cialis | viagra pills | order viagra | cialis coupon | canada viagra | generic viagra canada | cheap viagra uk | cialis online no prescription | viagra 100mg | viagra professional | cheap viagra | cialis sales uk | discount viagra | buy real viagra