Heim | Samband | Leit | Höfundur
Dead Famous e. Ben Elton (3/5)
Bækur
dead_famousDead Famous (Ben Elton) er ágætis afþreying; kannski jafnvel örlítið meira en það.  Hún höfðaði vel til mín, en hugsanlega er það að einhverju leiti vegna þess hve vel ég samsamaði mig aðalsöguhetjunni, lögreglumanninum Coleridge, og djúpu hatri hans á ömurleika raunveruleikasjónvarps. 
Sögusviðið er raunveruleikaþáttur svipaður Big Brother þáttunum sem allir ættu að þekkja (hvort sem þeir kjósa eður ei).  Morð er framið frammi fyrir ótal myndavélum en engin veit hver morðinginn er. 

Bókin er spennandi og grípur mann nokkuð fljótlega, þó hún skilji ekki mikið eftir sig.  Ég mæli með henni sem ágætri bók til að grípa með í fríið.  Hún krefst þess ekki að lesandi leggist yfir hvert orð í andakt - maður getur gripið í hana við og við og jafnvel eftir nokkurn viðskilnað kemst maður fljótt inn í söguþráðinn aftur. 
Einföld bók en ágæt.

Fyrir þá sem þola illa raunveruleikasjónvarp er bókin ómissandi ádeila (þó hún sé e.t.v. að fá örlítið of mikið af stigum á Amazon út frá því atriði).
 
cheap viagra uk | viagra pills for sale | viagra 100mg | buy cialis online | cialis no prescription | cialis sales uk | generic viagra canada | discount cialis | cheap viagra pills | discount viagra | order viagra | buy viagra online | viagra professional | viagra price