The Citadel (A.J. Cronin) er stórkostleg saga. Formúlan er einföld en virkar - þó bókin teljist e.t.v. ekki til fagurbókmennta (kann ekki að greina í slíka flokka).Fylgst er með lífshlaupi Dr. Andrew Manson, ungs manns sem nýverið hefur lokið læknaprófi. Hann hefur feril sinn í litlu þorpi í Wales en flytur á endanum til London, hvar hann verður græðginni að bráð. Í bókinni er sannur boðskapur og stórkostlegt að fylgjast með hugsjónamanninum Manson breytast í fégráðugan einkalækni ríka fólksins - og svo aftur......?
Um þessa bók þarf ekki að hafa mörg orð. Ég mæli með henni, aftur, aftur og aftur.
Furl
Facebook