Heim | Samband | Leit | Höfundur
The Kite Runner e. Khaled Hosseini (4.5/5)
Bækur
The Kite RunnerÍ gær kláraði ég bókina The Kite Runner (Flugdrekahlauparinn) eftir Khaled Hosseini. Bókin fær rétt tæpar fimm stjörnur frá lesendum Amazon og vandalaust er að átta sig á af hverju það stafar. Bókin er stórgóð, svo einfalt er það. Ég ætla ekki að taka undir með þeim sem telja hana snilldarverk, en hún skilaði svo sannarlega sínu og meira til.
Bókin byrjar fremur rólega, grípur ekkert endilega frá fyrstu síðu. Þá tekur við þægileg saga um tvo unga drengi sem sökum ólíks uppruna eiga fremur sérkennileg samskipti; stundum óþægileg fyrir lesanda. Um miðbikið hefst svo sá hluti bókarinnar sem festir mann gersamlega. Eftir það verður ekki aftur snúið.
Bókin er áhrifarík og einkar fræðandi um sögu og menningu þjóðfélags sem okkur er flestum hulið. Persónulega þykist ég fullviss um að lesturinn hafi skilað sér í auknum skilningi á aðstæðum sem sumir af mínum skjólstæðingum koma frá - og er það vel.

Khaled Hosseini mun vera búinn að skila frá sér nýrri bók - A Thousand Splendid Suns. Ég þykist viss um að hún verði fljótlega komin á náttborðið hjá mér, þó deildar meiningar séu um hvort hún sé jafn góð og The Kite Runner.
 
discount viagra canada | viagra pills | cheap viagra | buy cialis | viagra professional online | viagra 100mg price | buy cialis no prescription | cialis coupon | real viagra | generic viagra no prescription | order viagra | viagra price | cheap viagra | cialis sales uk