Hin svokölluðu "hryðjuverkalög" voru samþykkt árið 2001. Fullt heiti laganna er "Anti-terrorism, Crime and Security Act 2001".
Lögin eru gríðarlega fjölbreytt og ná m.a. yfir kynþáttafordóma, fordóma gegn trúuðum/vantrúuðum, samstarf við ESB í afbrotavörnum af ýmsu tagi, mútur, spillingu og eignafrystingu.
Þegar eignir útibús Landsbanka voru frystar, snemma í október 2008, var stuðst við 4 og 14 grein kafla 2 í nefndum lögum. Sá kafli er endurunnin úr eldri lögum, frá 1964.
Þessi tiltekni kafli er síður en svo beintengdur hryðjuverkum. Það er reyndar svo, að orðin "anti-terrorism" og "terrorism" er hvergi að finna í lagakaflanum.
Þegar lögin fóru gegnum lávarðadeildina á sínum tíma, var lögð fram breytingartillaga þess efnis að kaflinn yrði beintengdur hryðjuverkastarfsemi.
Þeirri tillögu var hins vegar hafnað, því ljóst var að lögin gátu átt við margskonar tilfelli sem í engu komu hryðjuverkum við.

Furl
Facebook