Kerfin á Mön og Bretlandi
Þess skal getið í upphafi, að KS&F (UK) og KS&F (IoM) voru tvö sjálfstæð fyrirtæki (systurfélög frá janúar 2007), en bæði voru þau dótturfélög Kaupþing á Íslandi.
(Banking Crisis, skýrsla TSC 03.04 2009)
KS&F IoM var rekið á eyjunni Mön og eftirlit með fyrirtækinu í ábyrgð þarlendra aðila (FSC). Engin tryggingasjóður var á eyjunni, sem ekki er í ESB, en að kröfu fjármálaeftirlitsins hafði KS&F orðið sér út um ábyrgðarskjal (parental guarantee) frá íslenska móðurfélaginu (Kaupthing Bank Hf), hvar íslenski bankinn viðurkenndi ábyrgð á öllum innistæðum KS&F IoM. Á þetta skjal var lagt mikið traust.
In the case of the KSF (IOM) ‘parental guarantee’ an enormous amount of trust was placed on the ‘guarantee’; and it was ‘played on’ heavily by the company to attract business.
(manxherald.com 09.05 2009)
Iceland's Kaupthing Bank had issued a parental guarantee to its Isle of Man subsidiary in 2007, covering all of its liabilities including deposits.
But after meeting Icelandic officials, Tony Brown said there was little chance of the guarantee being honoured.
(BBC 07.01 2009)
KS&F UK var rekið í Bretlandi og eftirlit með fyrirtækinu í höndum þarlendra yfirvalda (FSA). Eins og í öðrum löndum Evrópu gilda ákvæði um innistæðutryggingar, en stærri fyrirtæki, samtök og sveitarfélög eru þó undanskilin, líkt og heimilt er samkvæmt reglum ESB.
Tengsl KS&F IoM og KS&F UK
Stjórnendur bankans á Mön (KS&F IoM) höfðu þann sið að taka innistæður viðskiptavina sinna og leggja inn í breska banka, en útfærsla þess hefur verið gagnrýnd mjög í kjölfarið.
Ef KS&F IoM hefði viljað vernda sig gegn áföllum hefðu þeir þurft að dreifa innistæðum viðskiptavina sinna milli öflugustu banka Bretlands. Með því móti hefði áfallið orðið yfirstíganlegt, þó einn eða tveir féllu.
Mistök KS&F IoM fólust í að leggja allar innistæður inn í einn og sama bankann, KS&F UK, alls um 550 milljónir punda.
Hvað þetta varðar, hefur fjármálaeftirlitið á Mön (FSC) ásakað hið breska (FSA) um að þrýsta á yfirvöld á Mön að leggja peningana inn í KS&F UK, en fyrir því hafa engar sannanir fundist, hingað til.
However, we can find no evidence that the FSA pressured the Isle of Man authorities to authorise or encourage the placement of such a significant deposit with Kaupthing Singer and Friedlander (UK).
(Banking Crisis, skýrsla TSC 04.04 2009)
Yfirtaka KS&F UK
Þegar Bretar tóku yfir KS&F UK urðu þeir að tryggja endurgreiðslu innistæðna einstaklinga, upp að 50.000 pundum. Eins og áður sagði eru innistæður stærri fyrirtækja, samtaka og sveitarstjórna ekki tryggðar, en í þann flokk féllu innistæður frá fyrirtækinu KS&F IoM.
Hefðu Bretar greitt KS&F IoM áðurnefnda innistæðu, hefðu öll sveitarfélög, samtök og fyrirtæki fylgt í kjölfarið með sínar ítrustu kröfur.
Misskilningur
Í íslenskri umræðu hefur ríkt nokkur misskilningur varðandi þessa deilu, og enn rekst maður á tilvísanir í eftirfarandi.
a) Fjöldi fólks lítur svo á að Bretar beri ábyrgð á innistæðum einstaklinga í KS&F IoM, rétt eins og þeir sannarlega gera í tilfelli KS&F UK. Fyrst Bretar vilja ekki borga, sé þar komin réttlæting á að hafna ábyrgð vegna Icesave.
b) Ennfremur telja menn ástæðu þess Bretar vilja ekki standa við þessa (misskildu) ábyrgð, vera þá að íbúar á eyjunni Mön hafi ekki greitt skatta í Bretlandi.
Innistæður einstaklinga
Hvað innistæður einstaklinga varðar vona ég menn hafi áttað sig, eftir að hafa lesið hingað, en skal þó útskýra betur.
Um innistæður einstaklinga er í raun alls ekki deilt og hefur aldrei verið. Hvergi, utan Íslands, hef ég séð því haldið fram af nokkurri alvöru að Bretar beri þar ábyrgð, því ljóst er að innistæður KS&F IoM voru alfarið á ábyrgð íslenska bankans, Kaupthing Bank Hf, líkt og ábyrgðarbréfið (parental guarantee) kvað á um.
Sem sagt. Það sem deilt var um, rétt eftir hrun, voru ekki innistæður einstaklinga í KS&F IoM, heldur uppsafnaðar innistæður viðskiptavina sem fyrirtækið KS&F IoM lagði inn í fyrirtækið KS&F UK.
Þá upphæð vildi KS&F IoM skiljanlega fá tilbaka, til að geta gert upp við sína innistæðueigendur. Það gátu Bretar ekki, því þá hefðu þeir verið að viðurkenna rétt allra fyrirtækja, samtaka og sveitarfélaga til endurgreiðslu, þvert á lög þar að lútandi.
Skattarnir
Hvað seinni misskilninginn varðar, skrifast hann alfarið á Alistair Darling. Hann vísaði sjálfur í skattaskjól á opinberum vettvangi, væntanlega til að afla sér stuðnings meðal almennings í Bretlandi.
Darling bjóst væntanlega við íbúar Mön myndu njóta samúðar Breta og sívaxandi pressa yrði á að undanþágu fyrir eyjaskeggja.
Slík undanþága hefði líklegast valdið flóði lögsókna gegn breska ríkinu, hvar aðrir krefðust sömu þjónustu.
I have said I will look after the interests of all retail depositors in a branch in London that I think we are responsible for. If you go to the next stage and say, “Look, you should take over responsibility for something that is done in the Isle of Man or Guernsey or, indeed, by extension, other countries”, that is quite a significant step to take.
(Alistair Darling, Banking Crisis, skýrsla TSC 04.04 2009)
Sannleikurinn um skattana er þó líklega fjarri því sem Darling sagði. Þó vissulega finnist viðskiptavinir innan KS&F IoM sem eru þar einungis vegna skattfríðinda, virðast flestir viðskiptavinir venjulegt fólk sem taldi peningana sína best geymda í banka.
Athugasemd Darling var því bæði óþörf og ódrengileg.
Eftir stendur að rökin fyrir því Bretar gátu ekki - og geta ekki - endurgreitt KS&F IoM það sem fyrirtækið lagði inn í KS&F UK, standa óhögguð - hvað sem svo síðar verður.
Þau rök hefur TSC (Treasury Select Committee) samþykkt í skýrslu nefndarinnar um bankahrunið, og Tony Brown, landsstjóri eyjunnar Mön hefur auk þess viðurkennt að ábyrgðin liggi ekki hjá breskum stjórnvöldum.
When pushed on whether the UK Government should seek to provide redress to savers in the Isle of Man, Mr Brown replied “I do not think the UK Government is responsible for the financial affairs of the Isle of Man”.
(Tony Brown, Banking Crisis, skýrsla TSC 04.04 2009)
-----
Helstu niðurstöður:
- Bretar báru aldrei ábyrgð á innistæðum KS&F á Mön.
- Með ábyrgðarbréfi (parental guarantee), útgefnu árið 2007, viðurkenndi Kaupþing á Íslandi alla ábyrgð á innistæðum KS&F IoM.
- Deila IoM og UK sneri fyrst og síðast að einni stórri innistæðu sem KS&F IoM lagði inn í KS&F UK.
- Ummæli Alistair Darling um skattaskjól hafa ítrekað verið misskilin, en koma deilunni lítið við. Dæma sig sjálf.
- Deila IoM og UK er í engu sambærileg deilum um Icesave.
-----
Ég vona þetta hafi skýrt þetta mál fyrir einhverjum - textann má afrita og nota að vild, án þess að vísa sérstaklega í mig.
Gott væri að fá athugasemdir ef menn telja einhvers staðar farið rangt með (nota t.d. tengilinn "Samband" efst á síðunni) - með tilvísun í heimildir ef mögulegt er. Spurningar eru þá velkomnar, þó ég lofi engu um hvort ég þekki svörin.
Ég mun uppfæra skjalið eftir þörfum, ef leiðréttingar berast eða spurningar sem eiga við efnið.
Furl
Facebook