Eitt hefur ávallt setið í mér varðandi samtal Árna Mathiesen og Alistair Darling. Undir lok samtalsins, þegar Darling bendir á að orðspor þjóðarinnar muni bíða hræðilega hnekki, samsinnir Árni umsvifalaust.
Nú hefur Árni haldið því fram að í samtalinu hafi hann fullyrt að Íslendingar ætluðu að standa við skuldbindingar sínar og illskiljanlegt sé hafi Darling misskilið boðskapinn.
Ef skilningur Árna er réttur; af hverju jánkar hann þá athugasemd Darling? Hefði ekki verið eðlilegra að óska frekari skýringa? Inna Darling eftir því hvers vegna þjóð sem ætlar að standa fullkomlega við samninga, muni tapa orðsporinu?
Hugsa sem svo að eitthvað hafi misskilist fyrst Darling tók svona til orða; ítreka að Íslendingar ætli að standa við sitt?
Hér er kannski ekki um "krúsjal" atriði að ræða, en mér hefur ávallt þótt Árni undarlega fljótur að samþykkja mannorðsmissi þjóðarinnar. Svona miðað við hans skilning á samtalinu.
Annars myndi ég gjarnan vilja stjórnvöld gerðu hljóðupptökuna sjálfa opinbera, fyrst samtalið liggur fyrir hvort sem er. Hana væri fróðlegt að heyra.
Darling: Veistu, ég skil svo sem afstöðu þína. Þú verður að gera þér ljóst að orðspor þjóðar þinnar bíður hræðilega hnekki.
Árni: Já við gerum okkur það ljóst.
(VB 23.10 2008)

Furl
Facebook