Ég tek ofan fyrir Siv Friðleifsdóttur sem spurt hefur hverjir vissu af meintu tilboði FSA; að Icesave reikninga mætti flytja undir breska ábyrgð fyrir litlar 200 milljónir punda.
Hvernig sem á er litið er þetta stærsta einstaka málið í hrunsögunni allri og fullkomlega eðlilegt að svara sé krafist - og svör verði tékkuð af. Jafnvel margtékkuð.
Ég undrast fátt meira en gagnrýni á Siv hvað þetta varðar, en einhverjir virðast vilja hún láti kjurt liggja. Það er ósiðleg krafa sem segir meira um téða einstaklinga en ég vil vita.
Þegar Davíð Oddsson var inntur eftir þessu á sínum tíma afneitaði hann allri vitneskju, en dró svo í land daginn eftir og viðurkenndi að Seðlabankinn hefði heyrt af þessu "í framhjáhlaupi".
Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að Seðlabankinn hafi einungis í framhjáhlaupi fengið veður af umleitan Landsbanka eftir hraðameðferð frá breska fjármálaeftirlitinu til þess að koma IceSave undir breska lögsögu.
(VB 28.10 2008)
Af því tilefni bloggaði ég eftirfarandi.
Mér stendur á sama þó Davíð og félagar hafi heyrt af þessu gegnum sextánda mann og sá hafi verið sauðdrukkinn. Orðróminn átti að kanna og komast að því, nákvæmlega, hvað um væri að ræða.
Getur verið að stærstu nöfnin í fjármálaabatteríi Íslendinga skildu ekki hvílíkt stórmál var þarna á ferðinni?
Þjóðin hlýtur að biðja um skýrari svör. Í mestu auðmýkt samkvæmt hefðinni.

Furl
Facebook
Darling. Árni og Davið,Geir of vissu af þessu.
Björgvin of voru í London snemma í Sept á fundi með Darling,eftir þann fund selur ráðuneytisstjótinn í fjármál öll sín bréf í Landsbanka.
Þeir vissu allir um þessa 200 Mills Pund tilboð frá Bretum en gerðu ekkert af viti.
Þannig að ætla má að Davíð og ofl hafi viljað bankana í þrot! Enda hafði Davíð hótað Sigurði Einarssyni því fyrr um árið í New York.
Þetta er samsæri af hálfu Davíðs Oddsonar og félaga í Bilderberg.
Reyndar voru Bretar a reyna að gera okkur greiða með þessu tilboði!
Merry Christmas.
Frelsi frá Davóðum Mugabesyni Seðla Bana.
Utangáttastjórn Ingibjargar og Geirs er ekki treyst til neinna verka. Alþingi nýtur einskis trausts heldur, og hefur unnið til þess. (skoraði rækilega í þeim efnum í gær).
Hér þarf ný kosningalög sem auka verulega áhrif kjósenda. Síðan kosningar.
Fyrr fást ekki heiðarleg og traustvekjandi svör við neinum spurningum. Ekki einu sinni þeim augljósustu.
Utangáttastjórn Ingibjargar og Geirs er sjálf kreppan.
Önnur pæling: Ef við setjum okkur í sporin sem við vorum í fyrir þremur mánuðum síðan. Hvað ætli hafi verið sagt ef Davíð og undirsátar hans í ríkisstjórninni hefðu reitt fram rúmlega þrjátíuþúsund milljónir til að tryggja viðskiptahagsmuni Bjögganna í Bretlandi?
Eða að ríkisstjórnin hefði staðið fyrir flutningi úr íslenskri skattalögsögu á forrettningu sem velti skrilljónum?
Það hefði a.m.k. þurft umtalsvert pólitískt hugrekki til að standa að slíkum aðgerðum.
Menn tala gjarnan eins og allt það sem við vitum núna hafi legið fyrir frá upphafi.
Annað sem gegnsýrir umræðuna er einhverskonar nauðhyggja. Menn ganga að því sem vísu að allt það sem gerst hefur hafi verið óumflýjanlegt og fyrirsjáanlegt. Hér væri við hæfi að minna á Rumsfeld sem orðaði vandan við forsendur ákvörðunatöku manna best í ræðunni sinni um "known unknowns", etc.