Heim | Samband | Leit | Höfundur
Ráðist á Jón Ásgeir
2008
19/12 2008 22:59
Af hverju eru lög og reglur?  Er það ekki m.a. vegna þess við vitum að sumum er ekki treystandi?  Lög um hámarkshraða segja okkur t.d. hversu hratt við megum keyra og umferðareftirliti er ætlað að tryggja farið sé eftir bókstafnum.

Þetta mættu menn hafa í huga, nú þegar ráðist er að Jóni Ásgeiri úr öllum áttum. 
Ekki það ég ætli að verja Jón; því fer fjarri.

En Jón Ásgeir er ekki kjörinn fulltrúi þjóðarinnar; hann ber enga ábyrgð á máttlitlum lögum og eftirliti.  Þvert á móti.  Hann nýtti sér ræfildóminn út í ystu æsar, að því er virðist.
Jón Ásgeir er ökuníðingur sem skipti sér lítið af lögum um hámarkshraða og slapp ágætlega við eftirlitið.  Á það ekki við um flesta siðlausa kaupsýslumenn á Íslandi síðustu ár?

Annars er einkennilegt hvað ásakanir virðast takmörkuð "auðlind" á Íslandi, því ef einhvern þarf að úthrópa mjög mikið, takmarkast um leið sök annarra.
Því dekkri sem Jón Ásgeir er málaður, því hvítari verður stjórnsýslan á Íslandi.
Þó er þar að finna liðleysur liðleskjur sem einmitt voru kosnar og ráðnar í sín embætti til að vernda þjóðina fyrir (meintum) vitleysingum eins og Jóni Ásgeiri.

Jón Ásgeir, Björgólfur, Davíð, Jónas, Geir, Ingibjörg - og fleiri mætti telja.  Þetta er allt sama tóbakið. 
Ef þið áttið ykkur ekki á því, er lítil von til að eitthvað breytist á Íslandi.  Það verða þá bara einhverjir aðrir sem spila með ykkur næst.

Og þið munuð eiga það fyllilega skilið.

-------

Ég er óvenju latur að blogga þessa dagana.  Hef ekki haft tíma til að fylgjast með.
Þarf þess ekki.  Það er sama sagan dag eftir dag.

Fjöldi spillingarmála á Íslandi síðustu mánuði er heimsmet miðað við höfðatölu (kannski jafnvel án hennar?). 

Það þarf ekki einu sinni að rífast um þá staðreynd.

Ísland er leiðandi.
 

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
generic viagra no prescription | discount cialis | viagra professional online | buy cialis online | order viagra online | canada viagra | cialis sales | viagra 100mg | cheap viagra | buy viagra online | cheap viagra | viagra pills for sale | buy cialis no prescription | discount viagra