Heim | Samband | Leit | Höfundur
Áhlaup á Kaupthing Edge
12/06 2009 17:32
Nokkrum dögum eftir hrun staðhæfði ég hin svokölluðu hryðjuverkalög höfðu ekkert með fall Kaupþing að gera; bankinn átti aldrei möguleika.

Ég benti á að fyrir hrun horfði ég á áhlaup á Kaupthing Edge í "beinni" á breskum fjármálaþráðum, sem ég stúderaði mikið síðustu vikurnar fyrir hrun.
Undir lokin mátti sjá almenningur í Bretlandi greiddi háar upphæðir í refsikostnað til að ná peningum út samdægurs; þá staðreynd var aldrei fjallað um í fjölmiðlum.

Ég ítreka; þetta var fyrir aðgerðir Breta.

En í þessu talaði ég gegn þorra þjóðarinnar og fékk á mig hefðbundnar ávirðingar um þekkingarleysi.  Það þótti jaðra við landráð að samþykkja ekki opinbera skýringu ríkisstjórnar Íslands - sem sagt, Kaupþing var ágætlega staddur banki þar til Bretar skemmdu allt.

Þann sannleika predikuðu stjórnmálamenn, allir sem einn, svo ekki sé minnst á fjölda hámenntaðra manna á hinum ýmsu fræðasviðum.

Dagsskipunin var einföld; bendið yfir hafið - en alls ekki á okkur.  Og þjóðin lét siga sér.

Í gærkvöldi birti RUV svo fréttir af áhlaupinu á Kaupthing Edge; sama áhlaup og ég tilkynnti um fyrir næstum 9 mánuðum. 
Áður hef ég bloggað um vafasamar leiðir Kaupþing til að fegra stöðu sína.

Allt ber það að sama brunni - Kaupþing átti aldrei möguleika, burtséð frá aðgerðum Breta.  Álitsgjafarnir höfðu rangt fyrir sér.

Lærdómurinn er eftirfarandi.

Engu skiptir hversu há-menntaðir menn eru eða hvaða stöðum þeir gegna; fjarlægi þeir aldrei höfuðið úr afturendanum og horfa kringum sig, vita þeir ekkert.
 
Gagnrýni (2)
1 12/06 2009 19:24
Anna Benkovic
Prime Minister Geir H. Haarde shouldn't be pissed off with the EU countries but merely with himself and his Central Bank and 2 or 3 large Icelandic Banks (IMG:style_emoticons/default/dry.gif) After all Iceland didn't want to belong to the EU in the first place so WHY being pissed of with the EU ? (IMG:style_emoticons/default/huh.gif)
It's a country with 300,000 people for Xsake...and they put themselves in shite, nobody else did.

In The Netherlands they attracted some 50,000 people*** who stashed their savings with ICESAVE (lured by high interest rates) and contrary to what happened in the UK, ICESAVE Holland was not allowed to close their Bank-website ....BUT....showing some clients on television, it was IMPOSSIBLE for them to get access to the website in order to try and transfer money from their accounts into saver haven.

Iceland's Prime Minister Geir H. Haarde shouldn't blame others....but himself, his Central Bank and the regulators, controlling the other banks. (IMG:style_emoticons/default/dry.gif)


*** The Dutch clients of ICESAVE- Iceland are able to collect (lot of trouble, but still) the first € 20,000 savings from the Icelandic Goverment and the rest they're hopefully (for them) able to collect from the Dutch Government, which in fact, I find rather stupid; if you're that greedy to put your money on an iceberg and the iceberg melts...it's your own fault....

http://www.thaivisa.com/forum/Icesave-Sht-Creek-Expats-Troub-t216509.html
2 13/06 2009 13:42
Aumini
Ja.... her er lítið um komment frá Íslenskum aumingjum. Lúserarnir, hver öðrum lögfróðari eru nú að rífast um það nýjasta sem BRETAR eru að gera ÍSLENDINGUM. það er ekki tími til að vera aðskoða þetta mál Baldur, heilaþvotturinn bíður ekki uppá endurskoðun, rök eða sannleika.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
The future of global banking: government resources used to create winners in the race for financial supremacy? http://bit.ly/5UT3U5