Heim | Samband | Leit | Höfundur
Augljós örvænting
01/07 2009 20:47
Fari svo Bretar og Hollendingar samþykkja að setjast aftur við samningaborðið, legg ég til ný skoðanakönnun Gallup verði þýdd á útlensku og kynnt fyrrnefndum þjóðum.

Skotheld sönnun á örvæntingunni sem ríkir í þjóðfélaginu. 

Maður fær næstum tár í augun.

-----

Ég hnuplaði eftirfarandi af vefsíðu örvitans.  Hef ekki hugmynd um sannleiksgildið, en sagan finnst mér stórgóð.

Fyrir nokkru var bíll dreginn af bílastæði við Leifstöð. "Eigendur" voru erlendis og fjármögnunarfyrirtæki (vondu mennirnir) sótti bílinn sem ekki hafði verið greitt af í marga mánuði. Blað eitt ætlaði að fjalla um málið, hringdi í fyrirtækið og spurði hvaða mannvonska þetta væri að taka bílinn. Sá sem rætt var við spurði á móti hvort hin raunverulega frétt væri ekki sú að fólk sem ekki gæti borgað af bílnum sínum væri statt erlendis í skemmtiferð. Engin frétt var skrifuð.
(Matthías Ásgeirsson 01.07 2009)
 

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
The future of global banking: government resources used to create winners in the race for financial supremacy? http://bit.ly/5UT3U5