Heim | Samband | Leit | Höfundur
Byltingin sem aldrei varð
20/07 2009 23:59
Búsáhaldabylting hin fyrri hefði mátt vera vorið 2007, þegar hæstiréttur staðfesti að á Íslandi geta einstaklingar ekki brotið samkeppnislög.  Siðlausir forstjórar olíufélaganna, sem höfðu af þjóðinni gríðarlegar fjárhæðir með samkrulli og óheiðarleika, gengu úr réttarsal með bros á vör.

Enda höfðu þeir ekkert gert af sér, heldur fyrirtækin sem þeir stjórnuðu!

Forstjórarnir voru ákærðir í 27 liðum fyrir samráð og markaðsskiptingu. Héraðsdómur vísaði málinu frá 9. febrúar á þeim forsendum, öðrum fremur, að ekki væri unnt að refsa einstaklingum fyrir brot á samkeppnislögum.
(visir.is 16.03 2007)

Þarna átti þjóðin að sjálfsögðu að sýna tennurnar.  Krefjast aðgerða, lagabreytinga, ábyrgðar!  Kenna þeim sem læra þurftu, að Íslendingar sætta sig ekki við siðlausa þjófa í stjórn fyrirtækja.

En.

Á þessum tíma gekk allt bærilega og þolinmæðin meiri en í dag.  Íslendingar sættu sig við siðleysið.

Og engin lærði neitt.
 
Gagnrýni (1)
1 21/07 2009 00:22
Rómverji
Íslendingar trúa á óæðri máttarvöld, og tigna sérstaklega óæðri endann á þeim. Þeir vilja engu ráða sjálfir um örlög sín. Þeir láta sig engu varða hvort þeir ganga uppréttir á aftökustað eða eru dregnir þangað eins og skynlausar skepnur. Af skepnum sem hafa komið fram við þá eins og skepnur.

www.kjosa.is

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections