Heim | Samband | Leit | Höfundur
Fréttamat, krækjur og Greedy Town
15/06 2009 00:01
Ég glotti stundum yfir fréttamati íslenskra fjölmiðla hvað Bretland varðar.  Oft og tíðum virðast blaðamenn þaullesa breska miðla, hirða úr þeim það neikvæða og bera á borð Íslendinga.

Sniðugt dæmi er frétt RUV í gær, hvar fjallað var um þekkingarleysi Breta varðandi staðsetningu líffæra.  Sem er auðvitað grafalvarlegt ætli maður að fremja á sér uppskurð.

Í dag birtist hins vegar, í Guardian (Observer), frétt þess efnis að einn þekktasti hagfræðingur heims, Paul Krugman, teldi Bretland best statt af Evrópulöndunum um þessar mundir - og þakkaði það góðri efnahagsstjórn Gordon Brown.

Ekki sá ég betur en fréttin hafi farið framhjá blaðamönnum RUV - þó mörgum þætti hún eflaust merkari en "stóra líffæramálið". 

Pressan kom þó á óvart og fjallaði um, þó varla sé mikil eftirspurn eftir góðum fréttum af Brown.

Ekki að ég trúi Krugman fremur en öðrum; bíð bara rólegur og sé hvað verður.
-----
Mikið hefur verið vísað í þennan pistil Láru Hönnu, enda stórgóður.  Stjórnendur vefmiðla mættu reyndar læra af henni hvernig krækjur eru notaðar í texta.

Hef aldrei skilið af hverju það heyri til undantekninga að miðlar noti slíkar aðferðir.  Einna helst að ég sjái þetta á Eyjunni.

Tímaleysi?
-----
Held að Magnús Scheving ætti að útfæra Lazy Town og kenna börnum heilbrigði í fjármálum.

Hann er með Grjóna glæp, Greedy Town og Ofur-Joly; svo fátt eitt sé nefnt.

Hlýtur að geta matreitt þetta svo börnin læri að passa sig á bankastjórum, lánum og óhóflegri skuldsetningu.
 
Gagnrýni (3)
1 15/06 2009 19:52
ASE
;-) Og stórgóð hugmynd hjá þér með Greedy Town, vona að Magnús lesi bloggið þitt :-)

Ps. svo ánægð að þú ekki í Íslandspásu lengur að hvarflar ekki að mér að spyrja hvernig heimavinnan gangi með efnahagsstjórnina hans Brown :-)
2 16/06 2009 17:00
skattmann
Þessi skýrsla segir allt sem segja þarf um IceSave (sjá að neðan).

Það á einfaldlega að taka af okkur náttúruverðmæti okkar eftir 7 ár.
Við verðum gjaldþrota, engin ákvæði um að við fáum að dreifa greiðslum og laga þær að því sem ráðum við, samningsstaða okkar verður engin. Getum bara farið með málið sem einkamál fyrir breskan dómstól.

Sæstrengur verður lagður til Skotlands og orkan okkar og fiskurinn mun fara uppí skuld fyrir spottprís:

http://www.cepr.org/pubs/PolicyInsights/PolicyInsight26.pdf

“The Icelandic government could approach the IMF for a (revived) contingent
credit line. As a last resort, the government should try to borrow foreign exchange in the global capital markets by offering its natural resource wealth, mainly hydro and geothermal energy, as collateral.”
(collateral = trygging)

síða 10:

“Iceland also possesses some excellent collateral,
even if using it might prove politically unpalatable.
(palatable = agreeable or acceptable)”

og síðan

“From the perspective of the international financial
community, the most promising form of collateral for
official borrowing from abroad is Iceland’s natural
resources. Iceland is rich in hydro and geothermal energy
resources that are currently only exploited for
exports indirectly, by being embodied in the exports of
aluminium smelted and refined in Iceland. Before too
long, however, there may be a power cable linking
Iceland to Scotland and possibly to other countries as
well. This valuable resource could be used today by borrowing
against it. In particular, exploration rights and
exploitations options could be auctioned off to foreign
enterprises. Future foreign currency energy revenues of
the Icelandic Treasury could be securitised today, with
bonds that will only start paying a coupon in the future,
when the exports and taxes are actually flowing. While
also possibly politically unappealing, tens of billions of
dollars could be mobilised through this channel.”

Bretar ætla ekki einu sinni að greiða “tens og billions of dollars”, heldur einfaldlega taka þetta af okkur eftir 7 ár.
3 16/06 2009 18:04
Aumingi
Iceland's resources have already been used up as collateral by individuals who gained control over them through nepotism. If stupidity in Iceland could be harvested - IceSave could be paid off many times over. Skattman, we could start with you.

Please Norway or Denmark take us back. It is absolutely clear Iceland is not capable of independence.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections