Grímur Atlason deilir hér ágætlega á Heimssýn - og ritar af skilningi um gott samstarf ESB og Skota varðandi byggðamál.
Fyrir nokkrum dögum ferðuðust ættingjar mínir um Skotland og heimsóttu m.a. eyjuna Isle of Skye, sem liggur við norð-vestur strönd landsins.
Þar eru mörg þorp, 2-3 smábæir og fallegar sveitir.
Víða mátti sjá skilti með Evrópufánanum, lík því sem sjá má á myndinni hér að neðan.

Þegar ættingjarnir spurðust fyrir um skiltin, var þeim tjáð að svona merki væru notuð til að auðkenna öll verkefni til uppbyggingar á svæðinu sem væru fjármögnuð eða studd af Evrópusambandinu, sem léti sér einkar annt um hag dreifbýlisins, þróun þess og uppbyggingu.
Á þessu svæði, sem var með þeim fátækustu á Bretlandseyjum um miðja síðustu öld, virtist fólk hafa það aldeilis ágætt.
Þegar Skagafjarðardeild Vg ályktar sérstaklega um "endurreisn Íslands sé mikilvægari en aðild að ESB", velti ég fyrir mér hvort þeir hafi kannað þau tækifæri sem aðild að ESB gæti veitt byggðarlaginu?
Ég held einmitt endurreisnin og aðildin fari ágætlega saman.

Skilti á skoskri heiði - smellið til að stækka
Furl
Facebook
Frjálslyndir demókratar eru náttúrlega eini stjórnmálaflokkurinn í Bretlandi sem er heill í stuðningi sínum við ESB. Það er mjög stutt í ESB-andúðina hjá öllum hinum. Að mörgu leyti er þetta hinn ágætasti flokkur, en hefur á sér lúðastimpil sem kemur í veg fyrir að hann nái raunverulegum áhrifum.
Mér er mjög til efs að hægt sé að finna svona skilti annars staðar í Skotlandi en þar sem Lib.Dem. ráða ríkjum. Glasgow og Edinborg gefa amk ekki mikið fyrir ESB.