Heim | Samband | Leit | Höfundur
Icesave - jákvæð leynd?
16/06 2009 19:33
Jónas Kristjánsson segir eftirfarandi um Icesave samkomulagið.

Grunur leikur á, að í samningnum séu ákvæði, sem ekki standist birtu. Þess vegna séu þau leyndó.
(Jónas Kristjánsson, 16.06 2009)

Í athugasemdakerfi vefsíðu Egils Helgasonar má sjá fullyrðingar þess efnis hulduákvæðin séu hin verstu fyrir þjóðina.

Ég skal ekki segja.

Ef ljósfælin bakákvæði eru í samningnum, sem jafnframt hafa áhrif, sé ég ekki það þurfi endilega vera neikvætt.

Kannski hefur Svavar Gestsson náð inn einhverjum verndarákvæðum fyrir Ísland sem koma í veg fyrir höggið geti orðið of þungt?  Hugsanlega var það þess vegna sem Steingrímur missti sig af ánægju yfir góðu gengi Svavars, nokkru áður en samningurinn var kynntur, en varð svo að draga dálítið í land?

Gleymum því ekki að "smáaurarnir" sem Ísland þarf að borga Bretum og Hollendingum skipta í raun engu máli, samanborið við mikilvægi þess að engin vafi geri vart við sig um tryggingar bankainnistæðna. 
Ísland mun þar verða fordæmi, hvort sem verður með greiðslu eða útskúfun.

Ég sé enga ástæðu þess að fela ætti aukna hörku í samkomulaginu - en hafi Svavar náð betra samkomulagi en virðist við fyrstu sýn, mætti það ljóslega ekki spyrjast til annarra þjóða.

Það myndi skemma fordæmið.
 
Gagnrýni (23)
1 16/06 2009 19:41
Fordæmi Baldur? Hvaða milliríkjasamningur ætli séu á borði ríkisstjórnar Bretlands sem lúta að því að knýja smáþjóð til að bera ábyrgð á fíflagangi nokkurra bankamanna? Kanntu annan?
2 16/06 2009 19:53
ASE
Mér hafði dottið nákvæmlega það sama í hug.

Vandinn í íslensku þjóðfélagi hins vegar sá að enginn treystir neinum og ekki vantar að ákveðnir aðilar kynda óspart undir, sem stórhættulegt. Svo rekst maður á svona lagað: http://pressan.is/Frettir/LesaFrett/icesave-samningurinn-sagdur-kludur-fullur-af-gildrum-breskra-logspekinga

Verð að viðurkenna að trúi því fullkomlega að Bretar séu betri og lunknari samningamenn en við Íslendingar. Og þekki aðeins til breskra samninga og veit hversu snúnir þeir geta verið. Og þekki líka til Íslendinga í samningagerð og veit hversu "bláeygð" við getum verið.

En bara get ekki séð Breta / Hollendinga "stela" auðlindum af lítilli vestrænni þjóð eða keyra hana í gjaldþrot af illkvittni einni saman. Þó okkur sé kannski ekki annt um orðspor okkar þessa dagana þá held ég að flestum öðrum vestrænum þjóðum sé annt um sitt.

Svo hallast enn að þinni (okkar ;-) skýringu. Alla vega vona innilega að við höfum rétt fyrir okkur ;-)
3 16/06 2009 19:58
Ótrúlega máttu vera frjór að finna jákvæða þætti við Icesave- „samninginn“. Naívisti má maður teljast sem heldur:
- að Svavar Gestsson fjármálagúrú nái svo góðu samkomulagi að ekki megi spyrjast til annarra þjóða.
- að breska samningagengið sjái ekki þær glufur í breskum einkamálarétti sem Íslendingar ná að nýta sér óséðir!
- að íslenska samninganefndin geri sér grein fyrir öllum þeim gildrum sem Bretar settu inn.
Grow up, man!
4 16/06 2009 20:38
JR
Baldur.

Getur verið að þú hafir rétt fyrir þér, og þess vegna bregðast þeir svona við sem hér á undan mér skrifa ?
Einn af þeim sem aðllega er vitnað er í vegna hversu ICESAVE samningurinn er lélegur, er Ívar Pálsson sem skrifar hér á undan !
Hann er að vitna í sjálfan sig !
5 16/06 2009 20:48
Sæll Baldur.
Var að velta þessu fyrir mér líka: http://olei.blog.is/blog/olei/entry/897188/

Er samt fremur svartsýnn á þetta. Alþingi verður að sjá allan samninginn - eða hafna honum ella skilyrðislaust.

kv.
6 16/06 2009 20:54
Aumingi
Hefur einhverjum dottið í hug að þessum samningi gæti verið haldið frá dagsljósinu vegna þess hversu illa bretar koma útúr þessu. Ekki vegna vankunnáttu í samningum heldur frekar vegna þess að það er einfaldlega ekki raunhæft að ætlast til þess að íslendingar geti staðið undir öllu því tjóni sem þeir hafa valdið.

Bretar eru búnir að leggja fram stórar upphæðir nú þegar og Gordon Brown er pólitískt ekkert í sérlega góðum málum (þrátt fyrir glæsilega frammistöðu undanfarið) - það gæti vakið mikla reiði á bretlandi meðal almennings ef að það kemur í ljós að bretar séu að stórtapa á þessum samningi.

Ekki það að ég viti neitt um samninginn en
breskum almenningi þykir sennilega nóg að þurfa að bjarga sínum bönkum.....
7 16/06 2009 20:59
baldur
Ég skal ekki segja JR.

Þetta átti að vera hvati að hófstilltum umræðum, en mistókst ljóslega :-)

Sumir nærast á neikvæðni þessa dagana og vilja fátt annað eta. Skil það reyndar ágætlega.
8 16/06 2009 23:54
EJ
ASE, ekki gleyma Þorskastríðunum. Ég held að það hafi verið ágætt að það var settur gamall klækjarefur sem hefur væntanlega heyrt um hvernig skal tækla breskar samninganefndir ;)

En varðandi punkt þinn Ívar, ertu alveg viss um þetta? Heldurðu sem sagt því fram að samninganefndin íslenska hafi sem sagt ekki talað við neina enskumælandi lögfræðinga?

En ég er sammála punkti Baldurs að það geti verið að þetta sé aðallega „face save“ samningur.
9 17/06 2009 02:20
Enn og aftur sammála þér,var alveg búin að hugsa þennan mögulega, jafnvel frekar enn kannski líka bara óskhyggja.
10 17/06 2009 06:58
Doddi D
Orðið óskhyggja fær nýja merkingu í svona brjálæðislegu rugli.
11 17/06 2009 13:20
Æh hvað ég væri til í að þetta sé rétt. Ekki sérlega bjartsýn samt...
12 17/06 2009 14:10
Baldur: Lestu þetta: http://birgitta.blog.is/blog/birgitta/entry/898211/
13 17/06 2009 15:04
baldur
Takk fyrir það Gunnar; ég las bloggið.

Sýnist Birgitta helst vera á að íslenskir þingmenn fái sjá samninginn.

Ég vona enginn skilji mig svo ég leggist gegn því.
14 17/06 2009 20:13
skattmann
jákvæð leynd Baldur?

http://eyjan.is/blog/2009/06/17/hugsanlegur-agreiningur-um-icesave-samningana-verdur-lagdur-fyrir-breska-domstola/
15 17/06 2009 20:30
baldur
Nei ekki var hún jákvæð; réttara væri að tala um óáhugaverða leynd :-)

Skil ekki af hverju leyndin var yfirhöfuð til staðar ef þetta er málið?
16 17/06 2009 22:37
skattmann
Finnst þér þetta sem sagt allt í lagi?

Gott væri að fá ítarlegt svar.
17 17/06 2009 23:12
baldur
Ég bíð ítarlegri upplýsinga áður en ég gef ítarlegt svar og geri það þá heldur í sér-bloggi, því þetta færist væntanlega niður :-)

Í fljótu bragði sýnist mér þó fátt þarna sem menn vissu ekki - og voru meira segja farnir að skammast yfir löngu áður en skjalið lak.

Skoðun mín er því líkt og áður; það er betra fyrir Íslendinga að samþykkja en hafna.
18 17/06 2009 23:37
skattmann
það er ljóst að 1200 milljarða skuldbinding í erlendum gjaldeyri sem að ekki er lagastoð fyrir er meira en Ísland ræður við.

Þá er ljóst að skýrslur hafa verið skrifaðar um það að íslensk orka geti farið í gegnum Sæstreng til Skotlands og fiskurinn líka upp í skuld.

Samningsstaða Íslands er nákvæmlega engin eftir 7 ár. Bretar og Hollendingar geta krafist hvers sem er og það eina sem Íslendingar geta gert til varnar er að fara með málið fyrir breska dómstóla!

Nauðasamningar þar sem að lítið land afsalar sér þjóðréttarlegri stöðu sinni, finnst þér það allt í lagi Baldur McQueen?
19 18/06 2009 00:01
Baldur: Það er fullt nýtt að koma í ljós, hættu þessu bulli. Vissulega voru menn að tala um að hugsanlega/kannski væri ýmis hættuleg ákvæði þarna en ég held að jafnvel þeir allra svartsýnustu hafi ekki búist við því að Íslendingar væru formlega að afsala sér öllum sínum réttindum til að reka málið á alþjóðagrundvelli OG að afsala formlega öllum eigum íslenska ríkisins.

Að samþykkja þennan samning væru hrein landráð.
20 18/06 2009 10:20
baldur
Skattman:
Skuldbindingin (sem menn keppast nú við að reikna sem hrikalegasta) er vissulega mikil. En það er fráleitt að láta sem þorri upphæðarinnar falli á ríkið.
Skýrslan sem þú vísar í er rituð af fólki sem varaði Íslendinga við - muni ég rétt er henni ætlað að skýra kosti Íslendinga í stöðunni. Ef þú rekst á skýrslu sem segir Íslendingar GÆTU selt Esjuna, myndir þú samstundis ákveða "vondu útlendingarnir" væru að fara taka fjallið?

Paranoja þín er með eindæmum.

Gunnar:
Það er ekkert nýtt að koma í ljós; skoðaðu Eyjuvefinn frá því áður en skýrslan lak. Þar voru menn búnir að marghrópa þetta í heilagri reiði.

Ég undrast reyndar dálítið að skynsamir menn eins og þið skuluð ekki gera eina einustu tilraun til að "tóna niður" neikvæðnina" á þeim vef, svona fyrst þið hafið gaman af að gera athugasemdir.

En þið, líkt og flestir Íslendingar, samþykkið auðvitað hvaða glórulausu staðhæfingar sem er, svo fremi þær séu neikvæðar og spá Íslendingum dauða eða vosbúð á sem kræsilegastan hátt.

Það er ykkar sannfæring, mín er önnur :-)
21 19/06 2009 01:20
skattmann
Baldur McQueen:

http://www.island.is/media/frettir/Icesave_samningurinn_innistaedutryggingar_holland.pdf

Ertu ennþá þeirrar skoðunnar að IceSlave sé "jákvæð leynd"?
Ef ekki, hvaða orð hefur þú um svona handrukkun?


Lítið hint:

Hver sá sem heldur því fram að ekki sé hægt að gera aðför að eigum ríkisins og það hvenær sem er, Bretar þurfa ekki að bíða í 7ár, er einfaldlega að setja ósatt.

IceSlave kveður skýrt á um það að ef að íslenskur þingmaður dirfist svo mikið sem hallmæla IceSlave, þá hafa Bretar lagalegan rétt samkvæmt handrukkuninni að gjaldfella IceSlave lánið samstundis.

Þá koma dráttarvextir og Bretar hafa lagalegan rétt til þess að krefjast þess sem þeir vilja uppí greiðslu. Við getum nákvæmlega ekkert gert. Stjórnarskráin er engin vörn, Bretar geta skipað okkur að breyta henni þannig að þeir fái óhindraðan aðgang að því sem þeir vilja taka af okkur.

Þetta er ekki djók!
22 20/06 2009 10:04
Aumingi Van Gull
Please, please skattman go to the naughty corner with the rest of the drama queens.

And could you please comment (If you really have to) in English or Dutch as the Icelandic language has been absorbed as down payment for the IceBrave debt....that is one asset that the evil foreigners are not prepared to wait for for seven long years.
23 03/07 2009 16:25
Ásgeir Valur Sigurðsson
Það er óheimilt að selja Esju - hvorki ríki né sveitarfélögum því það eiga hana allir.
Hins vegar má semja lög sem tryggja að stóriðjusinnar og stíflumannvirkjagerðasinnar fái ekki að umgangast Esjuna og aðrar náttúruperlur nema í fylgd þar til gerðra tilsjónarmanna sem eiga að tryggja öryggi náttúruperlnanna í hverri heimsókn hyggist slíkur aðili fremja slíka vonlausa tilraun.
Var ekki óhugsandi að selja útlendingum Kárahnjúka á sínum tíma áður en allt var sprengt í loftupp þar af hryðjuverkamönnum?
Nú eru menn að vakna og það er aðalatriðið - þá kemur líka reiðin.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
The future of global banking: government resources used to create winners in the race for financial supremacy? http://bit.ly/5UT3U5