Fyrir hrun bauðst Davíð ágætt tækifæri á afneita ábyrgð ríkisins á bönkunum. Það gerði hann ekki, heldur upplýsti breskan almenning um að íslenska ríkið gæti gleypt slíka ábyrgð, þó allir bankarnir hryndu.
Davíð Oddsson, Channel 4 - 03.03 2008
Eftir hrun kannast Davíð ekkert við þetta. Nú þykir honum mesta firra að ríkið gleypi nokkurn skapaðan hlut.
FyrirhrunsDavíð og EftirhrunsDavíð eru dálítið ósammála, en teljast þó að meðaltali hlutlausir.
Kannski karlanginn ætti að lúta því meðaltali og hafa ginið sem mest lokað á ævikvöldinu.
Og helst örlítið lengur.
Davíð Oddsson, Channel 4 - 03.03 2008
Eftir hrun kannast Davíð ekkert við þetta. Nú þykir honum mesta firra að ríkið gleypi nokkurn skapaðan hlut.
FyrirhrunsDavíð og EftirhrunsDavíð eru dálítið ósammála, en teljast þó að meðaltali hlutlausir.
Kannski karlanginn ætti að lúta því meðaltali og hafa ginið sem mest lokað á ævikvöldinu.
Og helst örlítið lengur.
Furl
Facebook
Hann heldur að enn sé árið 1985 og engu sé flétt upp nema því sem stendur í mogganum.
Þetta er bara til þess að minna fólk á Davíð og ekkert annað. Þetta er tilraun til hræðsluáróðurs, sem mun springa beint upp í andlitið á Morgunblaðinu og sjálfstæðisflokknum. Í þessu máli og öðrum.
Maður hefur reyndar líka alltaf rangt fyrir sér, en það er aukaatriði.
Hvað er svona merkilegt að eftirlaunamaðurinn Davíð Oddsson segir frá ?
Hefði ekki verið merkilegra að heyra seðlabankastjóran Davíð oddsson segja eitthvað af viti ?
En breytir því ekki að eftir svona yfirlýsingar hefði verið ráð að fylgjast sæmilega vel með vextinum.
Svo ekki sé minnst á meginþátt gagnrýni minnar - Davíð afneitar ekki ábyrgð ríkisins, þó þarna hafi gefist rakið tækifæri til þess að leiðrétta þann (meinta) misskilning.
Nú hafði Davíð mánuði fyrir viðtalið varað ríkisstjórnina sterklega við ábyrgðarlausri framgöngu bankanna og mögulegum afleiðingum; honum var staðan ljós.
Af hverju leiðrétti hann ekki þetta með ríkisábyrðina?
Hún er dálítið spaugileg (ef hægt er að nota slík orð um þessa sorgarsögu) röksemdarfærslan hans Davíðs. Við eigum ekki að borga IceSave að því að bankakerfið hrundi allt - ekki bara einn banki. Þessu hafa sumir haldið fram. En þá spyr ég - ef að Landsbankinn hefi einn farið á hausinn þá hefðum við auðveldlega getað borgað Icesave - er það ekki!! Það blasir við að IceSave reikningar voru út úr kortinu fyrir okkar hagkefi og skipti þá ENGU máli hvort allir eða bara Landsbankinn hryndu. IceSave var alltaf jafn hrikalegt fyrir okkur.
Þetta voru íslensk mistök hjá íslenskum banka sem starfaði eftir íslenskum lögum undir islensku eftirliti (m.a. Davíðs sjálfs)eins og Gylfi Magnússon benti á.
Þetta er náttúrulega yfirgengilega óábyrgt - fyrst er kefið þanið út. Erlendar eftirlitsstofnanir vara okkur við (m.a. Davíð Oddsson sjálfan - sbr minnisblað hans sjálfs frá því meira en ári). Síðan í kjölfarið er þessum reikningum leyft að þenjast út. Ný útibú opnuð í Hollandi og bindiskylda lækkuð - allt til að leyfa einkavinum í Landsbankanum að fjármagna gjaldþrota skip og setja byrðar á okkur.
Ég held að Davíð hafi enn einu sinni toppað sjálfan sig í ómerkilegheitum.
Þegar á þessum tíma var ljóst auðvitað að sjóðurinn gæti ekkert staðið undir icesave. Ríkið þyrfti að bakka hann upp.
Halda menn virkilega að stofnanir ss. Seðlab. og FME hafi ekki skoðað málefni innstæðutrygginganna ? Jú það hlýtur að vera og komist að því að ríkið væri á endanum ábyrgt lagalega séð enda gerir Davíð enga athugasemd við það í viðtalinu heldur talar bara um hve ríkið sé vel í stakk búið að takast á við það.
En síðan eftir hrun, þá koma nokkrir sjallar upp með "borgum ekki" þemað og segja þar með, eins og td. davíð, að hann hafi bara verið með alltí plati í viðtalinu að ofan. Bara að djóka eitthvað.
Náttúrulega svo ábyrgðarlaust að með miklum einsdæmum er. Miklum. Svo er kynnt undir þjóðernisrembing. Nú nýjast er svíagrýlan dregin á flot. Allt svíum að kenna. En það er gegnum gangandi í íslenskri menningu að allt vont kemur frá svíum og grípa þeir slíkt feiginsamlega. Andúð gegn svíum nær alveg aftur í fornsögurnar. Hann var sænskur maður segir stundum þar - og þá er verið að tala um vondan mann.
Framferði davíðs núna minnir á mann sem leggur íbúð í rúst. Síðan koma hreingerningarfólkið til að þrífa upp vibbann. Þá kemur maðurinn sem lagði húsið í rúst og sparkar í hreingerningarfólkið.
Lítill kall. Pínulítill kall.