Heim | Samband | Leit | Höfundur
Samhæfing farsíma í Evrópu
04/07 2009 17:49
Tíu stór farsímafyrirtæki í Evrópu hafa ákveðið að gangast undir þá beiðni Evrópusambandsins að samhæfa hleðslutæki fyrir farsíma, svo neytendur þurfi ekki að henda þeim gömlu þegar þeir kaupa nýja síma.

Fyrir utan augljósa kosti fyrir náttúruna, er þetta snilld fyrir neytendur.  Ég held flestir hafi lent í því, oftar en einu sinni, að geta ekki hlaðið símann sinn því allir í kring eru með aðrar tegundir - Nokia hleðslutækið týnist og makinn notar Sony-Erikson, og þar fram eftir götunum.

Þetta gleður mig mjög, því ég hef lent í ofangreindu oftar en ég fæ talið.

Meðal fyrirtækjanna sem ákveðið hafa taka þátt eru Apple, LG, Motorola, Nokia og  Sony Ericsson.

Nú vantar bara bílaframleiðendur samhæfi staðsetningu á háum ljósum og rúðupissi.  Þetta veldur mér miklum vanda þegar ég skipti milli vinnubílsins og heimabílsins. 

Hér er mikil hefð fyrir því að "gefa sénsa" í umferðinni - og háu ljósin gjarnan notuð í þeim tilgangi.

Framrúðan á vinnubílnum er ævinlega mjög hrein.
 

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections