Heim | Samband | Leit | Höfundur
Sópinn til Sjálfstæðisflokks
20/09 2009 10:54
Varla telst leyndarmál að Steingrímur J. Sigfússon vonast eftir langlífri félagshyggjustjórn á Íslandi.  Þetta útskýrði hann ágætlega í Kastljósi nýverið.

Ég er hins vegar sannfærður um stjórnin verði hvorki langlíf né auki líkurnar á sanngjörnu samfélagi til lengri tíma litið. 
Ég held reyndar, núverandi stjórn muni valda félagshyggju, jöfnuði, sanngirni - eða hvað menn vilja kalla það - óbætanlegum skaða.  Ríkisstjórnin mun gera þessum gildum hið sama og Borgarahreyfingin hefur gert smáflokkum.

Hið sama og snældan (eða nornin) gerði Þyrnirós.

Því hversu fagrir sem draumar Steingríms kunna vera, gleymir hann að kjósendur hafa sjaldnast langtímaminni.  Í augum flestra er grasið ávallt grænna hinum megin, hvað sem allri forsögu líður.  Þennan veikleika kunna "fagmenn" á sviði stjórnmála að notfæra sér, líkt og sjá má á sjálfstæðis- og framsóknarmönnum þessa dagana. 
Frasar þeirra falla í frjóan jarðveg; fortíðin er að gleymast.

Því legg ég til Jóhanna og Steingrímur rölti með skúringagræjurnar upp að Valhöll og skilji eftir við innganginn.  Láti kústana í hendur samnefnara hrunsins.  Sjálfstæðisflokkurinn á að laga til eftir sig undir vökulum augum almennings.

Með því að sinna þessu vanþakkláta starfi fyrir samnefnarann tryggir Steingrímur að samfélag sanngirni mun aldrei raungerast, því hann verður rekinn í lok hreinsunar og sóðarnir taka aftur völdin.

Eina leiðin til að opna augu kjósenda er að grípa sjálfstæðismenn glóðvolga, einmitt núna þegar þeir þykjast hafa lausnirnar á hreinu.  "Call their bluff".  Lofið þeim hlutleysi og afhendið þeim völdin.
Látið Sjálfstæðisflokkinn sigla með þjóðina í átt til einangrunar, líkt og stórum stóran hluta hennar virðist dreyma um.  Því fátt mun opna augu kjósenda betur en að fá óskir sínar uppfylltar.

Stysta leiðin milli A og B er ekki alltaf bein lína.

Félagshyggjustjórn morgundagsins er háð því samnefnari hrunsins fái völdin í dag.
 
Gagnrýni (5)
1 20/09 2009 11:46
Doddi D
Svei mér þá, ef þú hefur ekki hitt naglann á höfuðið.
2 20/09 2009 16:06
ASE
Áhugaverður pistill. Þó geti varla hugsað þá hugsun til enda að fá Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn aftur til valda..... þá finnst mér samt heilmikið til í því sem þú segir. Tilhugsin samt enn skelfileg :-o
3 20/09 2009 19:51
JR
Fólk sem segist vilja sjálfstæðisflokkinn aftur við völd á ekkert betra skilið en þeirra ,,eyðimerkurgöngu" !

Þetta er rétt hjá þér Baldur, látið ,,skúringafötuna" við Valhöll !
4 20/09 2009 20:53
Aumingi
Mæli með þessu! Skúringafötur við Valhöll.
5 27/09 2009 01:26
Hákon Jóhannesson
Áhugavert innsæji í stöðuna.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
viagra price | generic viagra no prescription | discount viagra online | viagra 100mg price | buy cialis no prescription | viagra professional online | cheap viagra online | viagra pills for sale | buy viagra online | cialis sales