Heim | Samband | Leit | Höfundur
Svik við kjósendur.....eða stefnumörkun?
19/07 2009 17:46
Endalausar ávirðingar um "svik við kjósendur" hafa verið áberandi - og þreytandi - eftir alþingi afgreiddi ESB málið.

Mér sýnist vandamálið víðtækara en einstakir þingmenn og ráðherrar.  Þannig virðist mér flokkarnir sjálfir þurfa endurskoða hvernig samþykktir verða til og lýðræðið að baki slíkum textum. 
Því má velta fyrir sér, hvort landsfundir séu sannarlega að skila stefnu í samræmi við vilja kjósenda tiltekinna flokka?

Þannig hef ég efasemdir um að Ragnheiður Ríkarðsdóttir hafi svikið kjósendur Sjálfstæðisflokks, með stuðningi við aðildarviðræður.  Meirihluti flokksmanna hafa verið hlynntir viðræðum í hverri einustu skoðanakönnun Capacent Gallup frá árinu 2004, utan febrúar 2006; í hverju felast svikin?

Sveik Ragnheiður kjósendur Sjálfstæðisflokks, eða sveik hún stefnumörkun sem klárlega var ekki vel unnin og náði ekki utan um raunverulegan vilja sjálfstæðismanna?  Því sá vilji hefur komið skýrt fram síðustu ár - þeir vilja í aðildarviðræður.

Í öðrum flokkum er svipaða sögu að segja.  Þannig hefur stuðningur við aðildarviðræður innan Vg verið meiri en andstaðan, í langflestum könnunum frá 2004.  Það er ekki síst innan þess flokks sem talað er um svik.

Spurningin hlýtur að vera; hvað gerist á landsfundum og í annarri stefnumörkun sem snýr vilja kjósenda á haus?

sjalfstaedisflokkur_large
Á myndina vantar skoðanakönnun frá febrúar 2009, hvar 54.2% kjósenda Sjálfstæðisflokks vildu fara í aðildarviðræður, 38.2% voru á móti og könnun frá desember 2008, hvar 55.8% voru hlynntir viðræðum en 26.4% voru á móti.
 
Gagnrýni (21)
1 19/07 2009 18:27
Séra Jón
Ég er vissum að Hjörtu J. Guðmundsson hefur skýringu á þessu :)
2 19/07 2009 19:26
Mjög athyglisvert. Takk fyrir birtinguna!
3 19/07 2009 19:54
Jakob Þór Haraldsson
Þú berð AF í umfjöllun, alltaf málefnalegur & mjög vandað það sem kemur frá þér! Ég reyndi að útskýra fyrir sjálfstæðismönnum að það væri ca. 30% fygli innan flokksins fyrir aðildarviðræðum og því hrósaði ég Ragnheiði fyrir að ÞORA að fara eftir sinni skoðun og endurspegla vilja þessa fólks innan flokksins. Á móti kemur þá sú gagnrýni hvort þingmenn eigi yfir höfuð að fara gegn ályktun landsfunda? Ég held þetta endurspegli bara að þessir "landsfundir" eru í raun og veru bara sýndarmennska & prump til að halda sumum smákongum ánægðum..:).

kv. Heilbrigð skynsemi
4 19/07 2009 20:00
Hjörtur J Guðmundsson bannaði mér að kommenta á blogginu sínu fyrir að spyrja hann hvort honum finndist það ekki óheiðarlegt að menn væru að verja ráðningu Þorsteins Davíðssonar. Það vissu allir að ráðningin væri spilling, en samt kæmu skósveinar flokksins og töluðu gegn betri vitnund og tækju upp á því að verja gjörninginn. Fyrir þetta hef ég verið bannaður á bloggum fjölda hægrimanna, t.d. Gísla Frey Valdórssyni og fleirum sem ég man ekki í augnablikinu. Þvílíkt lið sem hefur svo vondan málstað að verja og þurka svona athugasemdir út af því þeir eru svo hræddir við að kusk falli á flibba flokksins. Í alvöru, Sjálfstæðisflkkurinn er bara skjól fyrir glæpamenn og undirlægjur sem fá feit embætti fyrir m.a. að verja óheiðarlega gjörninga forystunnar.
5 19/07 2009 20:29
Kiddi
Gott innlegg í umræðuna.
6 19/07 2009 21:10
Sigurður Jónsson
Velkominn til baka, þín var saknað. / shj
7 19/07 2009 21:40
Þú mátt eiga það Baldur að eins og flestir aðildarsinnar ertu gegnheill ómerkingur. Í skoðanakönnunum sem þú vísar í er spurt um aðildarviðræður. Ísland fór ekki fram á aðildarviðræður við Evrópusambandið, Ísland sótt um aðild að Evrópusambandinu í títtræddri þingsályktun.
8 19/07 2009 21:50
Er HJG í fríi?
9 19/07 2009 22:15
Orðvar
Páll; ef orðhengilsháttur væri olympíugrein værum við Íslendingar ósigraðir.
10 19/07 2009 22:21
Stefán
Páll, hvernig átti að hefja aðildarviðræður í stað þess að sækja um aðild? Er einhver munur á þessu tvennu, er íslenska ríkið skuldbundið að einhverju leyti af því að það sækir um aðild í stað þess að óska eftir viðræðum.

Nei, þessi útúrsnúningur er frekar langsóttur.
11 19/07 2009 22:35
Steini
Til hvers að svara þessum ekki-baugsmiðli heldur rörsýna-miðli sem líklega skrifar hér sem Páll V.? Heiftin og gremjan sem birtist í skrifum hans gerir hann ómarktækan. Kallar flesta aðildarsinna gegnheila ómerkinga. Hvers lags rugl er það? Nú er ég ekki viss um mína afstöðu en sem komið er en það er á hreinu að það er ekki hægt að taka mark á ekki-baugsmiðlinum heldur fordóma-miðlinum Páli V. (Ég gef mér að það sé hann sem skrifar hér miðað við annað sem frá honum kemur)
12 19/07 2009 22:42
Egill M
Páll: Hvort sem að spurt er um aðildarviðræður eða beina inngöngu í ESB þá hefur nánast alltaf verið meirihluti fyrir því. Eins og segir á vef Samtaka Iðnaðarins: "Þegar spurt er beint: Ertu hlynntur eða andvígur aðild að Evrópusambandinu, hefur verið mjórra á munum. Sautján sinnum hefur verið spurt og hafa þeir sem eru hlynntir oftast verið fleiri. Þeir sem eru andvígir hafa tvisvar náð því að vera fleiri en einu sinni voru jafnmargir hlynntir aðild og voru henni andvígir."

Getur skoðað gröfin hér: http://www.si.is/malaflokkar/althjodlegt-samstarf/evropumal/skodanakannanir/

Annars finnst mér fyndið þegar andstæðingum ESB finnst í lagi að vitna í skoðanakannanir sem hafa verið gerðar eftir hrunið og sýna andstöðu við ESB en ekki tala um eldri kannanir. Persónulega held ég að eldri kannanir sýni betur viðhorf þjóðarinnar til ESB - sérstaklega þar sem að þær eru teknar á venjulegum tíma en ekki við óvenjulegar aðstæður eins og nú.
13 19/07 2009 23:00
Páll: Ég er eins og aðrir aðildarsinnar ómerkingur að þínu mati. Þið, hinir marktæku andstæðingar aðildar, eruð hins vegar með allt ykkar á hreinu. Þið vitið klárlega hvað okkur Evrópuvitleysingunum er fyrir bestu, og við eigum að sjálfsögðu að treysta handleiðslu ykkar. Fyrir alla muni eigum við ekki að láta á það reyna eitt andartak hvað hugsanlega muni bjóðast okkur í aðildarviðræðum, þið vitið það nú þegar, og guð hjálpi öllum þeim sem efast um óskeikulleika ykkar.
14 19/07 2009 23:49
Já. Málið er að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki aðeins svikið kjósendur sína með framgöngu sinni, heldur sjálfan sig og þau frjálslyndu og borgaralegu gildi sem hann hefur viljað láta líta út fyrir að hann hafi. Og ofbeldi það sem þeir beittu eigin þingmenn, var í lagi þegar þeir beittu því en ekki þegar VG gerði það
15 19/07 2009 23:58
Friðrik
Velkominn aftur Baldur

Þín var sárt saknað.

Þetta er mjög góð greining hjá þér og mjög tímabærar pælingar.

Hvað varðar Pál og hans comment þá held ég að menn verði bara að sætta sig við að sá maður lifir í öðrum heimi en við hin og er alls ekki málsmetandi í neina alvöru þjóðmálaumræðu. Hann ber ekki að taka alvarlega og skoðanir hans eru þekkt stærð sem hann getur þó ekki staðið undir í raun með rökrænum hætti.

Sumu fólki líður best illa :)
16 20/07 2009 01:02
S. Erla
Ég heyrði nú í honum Páli á Bylgjunni fyrir stuttu og þykir mér hann svo sannarlega kasta steinum úr glerhúsi.
17 20/07 2009 13:08
'Arn H Kristjánso
Þú ert góður
18 20/07 2009 18:42
Hans Snorri Geirsson
Þetta er áhugaverður punktur, en ég verð þó að segja að mér finnst hann ekki mjög sannfærandi. Hvað sem okkur finnst um uppbyggingu flokkakerfisins hér á landi, þá er það enn þannig að æðstu stofnanir hans ákveða stefnuna. Þannig er það ekki nóg að hafa kosið flokkinn í síðustu kosningum til að þú verðir átorítet um stefnu hans í kosningum.

Vissulega geta flokkar ákveðið að breyta stefnu sinni eftir vilja kjósenda sem fram kemur í skoðanakönnun. Eftir stendur hins vegar að opinber stefna flokksins er ekki tilkynnt af Gallup - og gæti þá breyst á milli mánaða - heldur ákveðin á flokksfundum.
19 21/07 2009 00:07
baldur
Ég þakka svörin :-)
20 21/07 2009 01:31
Gunnar
Eftir að úrslitin í þinginu lágu fyrir snerist Bjarna Ben enn einu sinni hugur í ESB málinu og gagnrýndi nú það að stjórnin ætli að vísa málinu til þjóðarinnar. Þannig orðar BB það: "..það er enginn einhugur í ríkisstjórninni um þetta mál...slík ríkisstjórn treystir sér því ekki að koma með aðildarsamning og leggja hann fyrir þingið. Þess vegna er kokkuð upp sú leið að senda málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Og þar með geta ríkisstjórnarflokkarnir skotið sér undan því að bera ábyrgð á sínu eigin máli. http://dagskra.ruv.is/ras2/4432089/2009/07/16/

Guðlaugur Þór flokksbróðir Bjarna bloggar svo í dag undir fyrirsögninni: "Íslendingar fá ekki að greiða atkvæði um ESB samninginn!", en segir þar samt í fyrstu málsgreinum "Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla fer þannig fram að þjóðin kýs um væntanlegan samning" http://pressan.is/pressupennar/LesaGudlaug/-islendingar-fa-ekki-ad-greida-atkvaedi-um-esb-samninginn

Guðlaugur leggur þarna Bjarna að velli því hann nær því að vera ósammála sjálfum sér innan þriggja málsgreina en það tók Bjarna heila klukkustund.
21 21/07 2009 01:32
JBJ
Á móti kemur þá sú gagnrýni hvort þingmenn eigi yfir höfuð að fara gegn ályktun landsfunda?
Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins Ísland eiga þingmenn að fara eftir eigin skoðun, ekki eftir skoðun landsfunda eða annarra.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
The future of global banking: government resources used to create winners in the race for financial supremacy? http://bit.ly/5UT3U5