Heim | Samband | Leit | Höfundur
Ágætur Bubbi
14/03 2010 02:02
Sitt sýnist hverjum um pressupistil Bubba Mortens.  Í pistlinum leynist sannleikskorn, sýnist mér, þó áherslurnar séu kannski helst til of svart/hvítar.

Í mínum huga er ljóst að embættis- og stjórnmálamenn bera helst ábyrgð á hruninu.  Þar er óþarfi að einblína á Davíð, þó þáttur hans sé óumdeildur.  Horfa þarf til embætta, ríkisstjórnarflokka og stjórnarandstöðu síðasta áratug eða svo. 
Sem sagt stjórnkerfið í heild; þetta afl sem spila á saman, einstaklingum og atvinnulífi til heilla. Nefnt kerfi brást, því sem næst fullkomlega, þó einstaklingar innan þess beri mismikla ábyrgð - og sumir enga.

Útrásarvíkingar eru annar handleggur.

Jaðarbrölt í viðskiptalífinu á að vera þekkt stærð - stjórnkerfið á beinlínis að gera ráð fyrir því margir beiti öllum brögðum í harðri keppni um hylli hluthafa og meira fé.  Viðlíka siðleysi hafa menn stundað í árhundruð og munu gera áfram, hvar tækifæri gefast til. 

Því miður á þjóðin litla heimtingu á að kaupsýslumenn hagi sér sómasamlega, svo fremi þeir fara að lögum.  Í margtuggðu orðatiltæki, "löglegt en siðlaust", er aðeins eitt orð sem einhverju skiptir, þegar öllu er á botninn hvolft.

En því fleiri mál sem falla í þann flokk (löglegt en siðlaust), því ljósara verður að kerfið brást - ekki síst löggjafarvaldið og þeir sem áttu að veita því aðhald og ráðgjöf.  Hið siðlausa er löglegt þar til löggjafinn breytir því.

Vel má vera ég sé að lesa pistil Bubba snarvitlaust, en í þessu ljósi er ég honum sammála.

Það var fyrst og síðast hlutverk stjórnvalda að vernda landsmenn gegn óvættunum.
 

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
cheap viagra canada | viagra pills | how to buy viagra