Heim | Samband | Leit | Höfundur
Að færa klukkuna aftur
23/02 2010 11:58
Ég sé hópur Íslendinga vill færa klukkuna aftur um allt að tvo tíma (GMT -2.00), svo birtan verði meiri að morgni til og dyntum svonefndrar líkamsklukku betur fullnægt (sjá tillöguna í heild sinni neðst í blogginu).

Í Bretlandi hefur verið rætt um hina leiðina - þ.e. að færa hana fram.

Brown hefur lofað að skoða hvort halda megi sumartímanum (GMT +1.00) yfir allt árið.  Einnig kæmi til greina að færa núverandi fyrirkomulag fram um eina klukkustund, svo sumrin færðust tveim tímum framar (GMT +2.00) en veturnir yrðu eins og sumartíminn er núna (GMT +1.00).

Þannig gæfist meiri tími til að njóta sólar eftir vinnu.  Að sögn mun þetta valda vexti í sölu þjónustu til túrista, börn verða heilbrigðari (leika sér heldur úti eftir skóla) og öruggara verður að keyra heim eftir vinnudaginn.  Einhverjir segja þetta muni einnig fækka glæpum.

Brown hefur velt fyrir sér að gera þetta til þriggja ára, til prufu.  En auðvitað gæti hann, í næsta skapvonskukasti slegið það af.  Hver veit.

Í mínum huga er þetta, líkt og einn viðmælanda Telegraph sagði, "no brainer".

Satt best að segja gæti mér ekki staðið meira á sama um birtu þegar ég vakna, eða er á leið til vinnu.  Þó átta sólir væru á lofti, væri ég samt fúll.  Líklega liði mér verr eftir því sem bjartara væri - því fallegum degi vildi ég eyða í annað en vinnu.

Það sem skiptir mig máli eru aðstæður þegar ég kem heim.  Ef dimmt er og drungalegt, fer ég heldur í sófann, sjónvarpsgláp eða tölvufikt.  Meiri birta eykur líkurnar á ég fari út og hreyfi mig dálítið.  Reyndar hreyfi ég mig helst aldrei, en látum sem þetta sé satt.

Án þess ég muni nákvæmlega hvernig sólin skín á Ísland, yfir vetrarmánuðina, hefði ég haldið mikilvægt að kanna rækilega báðar hliðar.  Bjartari morgnar á móti myrkum eftirmiðdögum.

Í ljósi þess hópurinn tiltekur sérstaklega í rökum sínum að forðast beri að vera á sama tíma og Bretar (væntanlega í kerskni), yrði þó stórgott ef Bretar og Íslendingar breyttu báðir samkvæmt ítrustu tillögum. 

Það yrðu þá þrjár klukkustundir milli þjóðanna yfir vetrarmánuðina, en fjórar á sumrin.

Breytum klukkunni á Íslandi!

Sá sem skoðar mynd af tímabeltunum sér að eitthvað er bogið við klukkuna á Íslandi. Hann sér að allt landfræðilega er allt Ísland einum tíma á eftir þeim tíma sem Ísland ákveður að vera á. Landfræðilegi tíminn í Reykjavík er mjög nálægt því að vera tveimur tímum frá því sem hann er núna. Ísafjörður nær því alveg, og er tveimur heilum tímabeltum frá raunverulegum tíma.

Það þýðir að þegar Íslendingar og Bretar fara á fætur á sama tíma klukkan 7, er birtan hjá okkur eins og klukkan sé 5. Taki maður mark á alvöru rannsóknum sem gerðar hafa verið á líkamsklukku okkar má sjá að við lifum ekki í takt við hana.

Með þessari tilskipun nýtum við þá litlu birtu sem okkur berst á veturnar verr, við erum að vakna um miðjar nætur.

Og þar fyrir utan erum við að stilla okkur með Bretum! Sýnum þeim að við göngum ekki þeirra erinda og kennum þeim þá lexíu að við ráðum sjálf hvað við gerum!

Er þetta hægt? Já, það eina sem þarf að gerast er að Alþingi fjalli um þetta og samþykki!
(Facebook tillaga)
 
Gagnrýni (12)
1 23/02 2010 13:58
Ísland er í reynd -1UTC miðað við Bretland. Bretland á auðvitað að vera á 0UTC allan ársins hring. Þessi sumartími var fundin upp til þess að spara eldsneyti, annað ekki og er í raun bara sjónhverfing og ekkert annað.

http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/e/e7/Timezones2008.png
http://en.wikipedia.org/wiki/Time_zone
2 23/02 2010 14:15
baldur
"Bretland á auðvitað að vera...."?

Nei, nú er ég ósammála Jón minn!

Jú, vel má vera landið sjálft eigi að vera hitt og þetta, útfrá landfræðilegum mælikvörðum, en ætli við mannfólkið ráðum nú ekki hvernig við stillum klukkurnar okkar :-)
3 23/02 2010 14:53
Það vill nú svo til að svona sjónhverfingar eins og þær sem eru stundaðar með þennan sumartíma breyta í engu líffræðilegri klukku mannsins. Nema þá helst til þess að rugla hana, og gera fólk þreyttara.

Bretar mega auðvitað vera á hvaða tímabelti sem þeir vilja. Hinsvegar er það nú þannig að það er ekki svo einfalt að hunsa gang sólarinnar.
4 23/02 2010 15:12
baldur
Jamm. Ég geri í sjálfu sér ekki athugasemd við það, enda tel ég fullvíst þú þekkir líkamsklukkur og tímabelti mun betur en ég.

En fyrir mér er þetta kýrskýrt.

Geti ég eytt 1-2 klukkustundum lengur úti í garði eftir vinnu - í sólbaði....nú eða við grillið - skal ég glaður taka á mig að vera örlítið þreyttari en ella.

Að geta notið sólar í 1-2 klukkustundir lengur, eftir vinnudaginn kallar þú "sjónhverfingar".

Ég kalla það gæði :-)
5 23/02 2010 20:09
Snorri
Hvernig er það Balli, hefur Bretum ekki dottið í hug að breyta vinnutímanum?
6 23/02 2010 20:43
KR
Ég er svo sannarlega sammála meistara Brown. Það yrði algjör lúxsus að geta notið lengri útiveru eftir vinnu á sumrin (og örlítið heitari kvöld).

En þetta er eins og allt annað á þessu kalda skeri að við komum okkur aldrei saman um neitt. Þetta ætti að vera eins og breski maðurinn sagði "no brainer"
7 23/02 2010 21:26
baldur
Óvitlaus tillaga í sjálfu sér, Snorri :-)

Íslendingar gætu þá að sama skapi byrjað að vinna klukkan 10-11 í stað 8-9. Kannski Facebook hópurinn ætti að leggja það til?

Eitt og annað kemur þó í veg fyrir slíkt, að mínu mati.

Þannig má nefna samhæfinguna. Annað hvort yrðu allir að breyta eða enginn. Þú gætir t.d. lent í að skóli barnsins þíns myndi kjósa að vera áfram með hefðbundin vinnutíma, en vinnustaðurinn breyta. Það væri heldur bagalegt.

En stærsta meinið er þó sálfræðilegt. Ég vakna um 5.30 þegar ég er á morgunvakt. Það er ekki óalgengur tími, ef fólk þarf að keyra dálítin spotta í vinnu eða taka lestir/strætisvagna. Ég verð að viðurkenna mér þætti erfiðara að vakna klukkan 3.30, jafnvel þó ég væri úthvíldur og allt það....bara að vita klukkan væri 3.30 væri mikið böl í mínum huga. Nógu ömurlegir eru morgnar fyrir :-)

Á sama hátt held ég Íslendingum liði ekki vel með að hætta vinnu milli 6-7 á kvöldin, jafnvel þó morguninn hafi verið bjartur og viðkomandi liði vel að öðru leyti.

Þá má nefna samskipti milli landa, hvar menn skoða hvað klukkan er í tilteknu landi og taka svo ákvörðun um hvort þeir hringi eða bíði með það. Ef klukkunni sjálfri er breytt, er það mjög einfalt....við vitum sæmilega vel á hvaða tímum er siðlegt að hringja hvor í annan (þyrftum reyndar gera meira af því!).

Hvað Ísland varðar má svo benda á hið rótgróna (og stórgóða) fyrirbæri "vaktaálag", sem gæti fléttast þarna inn í og valdið vanda.

Fleira mætti eflaust týna til.

---

Takk fyrir innlitið KR. Ég tek undir orð þín, þó það leynist í þeim landráð :-)
8 24/02 2010 00:12
Baldur, sólin er lengur á lofti yfir sumarið. Þannig að klukkubreytingin er bara sjónhverfing.

Hérna eru vefsíður með útskýringum á því.
http://www.crh.noaa.gov/fsd/astro/season.php
http://www.woodlands-junior.kent.sch.uk/CUSTOMS/questions/weather/sunshine.htm
9 24/02 2010 00:50
baldur
Kæri Jôn.

Êg þarf engar vefsíður til að lesa það sem er augljóst.

Tökum bara tvo sumardaga. Fyrri dagurinn er síðasti dagurinn með hefðbundunum tíma - seinni dagurinn er fyrsti dagur eftir breytingar, hvar klukkan er færð fram um tvo tíma.

Ég er staddur á fyrri deginum. Ég er í vinnunni. Klukkan er tvö, eftir hádegi. Það er heitt, gott verður og sólin skín. Mig dreymir um að vera laus úr vinnu, en á eftir að vinna til fjögur. Tvo tíma í viðbót. Ég veit að eftir vinnu get ég notið sólarinnar til klukkan átta.

Daginn eftir (fyrsti dagur eftir breytingar) er klukkan orðin fjögur og ég laus úr vinnu. Sólin er á nákvæmlega sama stað og hún var klukkan tvö deginum áður. Ég veit ég get notið sólarinnar til klukkan 10 (sem í gær var átta).

Flóknara er þetta ekki.
10 24/02 2010 09:04
Þetta er sjónhverfing, þér finnst þú bara hafa lengri tíma. Sem þú í reynd gerir ekki. Eins og ég bendi þarna á þá lengist dagtíminn yfir sumarið. Ef þú værir með samfellda sömu klukku þá mundi samt bætast við klukkutímar sem þú hefur í sólinni yfir hásumarið.

Í Júní og Ágúst hefuru 16 klukkutíma af dagsbirtu til að vinna úr. Miðað við 8 klukkutíma í Desember hvert ár. Bretar færa klukkuna fram um einn tíma yfir sumarið, staðreyndin er hinsvegar sú að lítið vinnst með þessari breytingu.

Síðan sóar þessi klukkubreyting afskaplega mikið af orku samkvæmt rannsókn. Þó svo að þetta eigi að spara orkuna.

http://online.wsj.com/public/article/SB120406767043794825-UOLcfJA8x9Gw9ozbCz77MiLmtaE_20080327.html?mod=tff_main_tff_top
11 24/02 2010 11:41
baldur
Jón, ég held við hljótum að vera misskilja hvern annan. Þú virðist halda ég sé að halda því fram sólin skíni lengur ef tímanum er breytt.

Svo er ekki - og skal það leiðrétt hér með. Vitlaus er ég, en ekki svo vitlaus.

Ég á einfaldlega við, að með tímabreytingu getur þú búið svo um hnútana að tími þinn utan hefðbundins vinnutíma fari meira fram á þeim tíma sem sólin skín.

Þú talar um 16 klukkustundir í júní og ágúst. Það segir sig sjálft að ef þú vinnur átta tíma á því tímabili, áttu átta tíma eftir í sól. Ef þú vinnur sex tíma, áttu 10 tíma eftir.

Það er í raun allt sem ég er að benda á.

Hitt er svo annað með orkuna, það kaupi ég alveg.
12 25/02 2010 09:31
Anna
Ég vil halda klukkunni eins og hún er. Hef aldrei upplifað jafn þunglyndislegan tíma eins og þegar ég var í námi í skandinavíu og þeir breyttu klukkunni úr sumartíma yfir í vetrartíma. Einn daginn var maður að koma heim úr skóla kl 5 í birtu en næsta dag var búið að breyta klukkunni og það var farið að rökkva þegar maður kom heim. En missti í staðinn af heilum klukkutíma af birtu á morgnana meðan maður var sofandi.
Þreyta á morgnanna á Íslandi á veturnar er óumflýjanleg, við fáum svo fáa tíma af birtu. Að fara að krukka í klukkunni til að reyna að bæta það er ekkert vit.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections