Upp er sprottið rifrildi um Evu Joly. Dálítið afmarkað, því tekist er á um hvort Eva sé að vinna Íslandi gagn eða ógagn. Evu hefur verið plantað í túnfótinn og um hana skal rifist.
En aðkoma Evu að Icesave er hvorki barátta fyrir hagsmunum Íslands, né gegn þeim. Eva hefur verið fullkomlega heiðarleg með það. Í Silfri Egils tók Eva sérstaklega fram hún væri þar sem þingmaður ESB.
Eva, og samflokksmaður hennar Alain Lipietz, hafa barist kröftuglega fyrir sam-evrópsku eftirliti með fjármálakerfi álfunnar, en Bretar verið heldur neikvæðir.
Augljóst er hve vandamál Íslands eru Evrópuflokki Evu mikilvæg, í þessu samhengi. Komi flokkurinn höggi á Gordon Brown, gæti það verið stórt skref í átt að þeirra draumum. Icesave er vopn sem græningjar hljóta að beita.
Sú er aðkoma Evu og Alain að Icesave.
Í nýrri grein þess síðarnefnda skín þetta í gegn. Markmiðið er að búa til sem mestan ágreining og Lipietz hikar ekki við að ýkja og hallar jafnvel réttu máli. Það að greinin birtist þegar horfði til sátta í málinu, er auðvitað ekki tilviljun. Sátt hugnast varla græningjum.
Ítrekað skal að hvorki Eva né Alain hafa sérstaklega falið sannleikann um aðkomu sína.
Það eru frekar íslenskir aðdáendur sem loka augunum. Kannski því þeim þykja hagsmunir græningja og Íslands fara ágætlega saman þessa dagana. Fullyrðing sem ég er ósammála, rétt eins og Björn Valur, en í þessu samhengi skiptir það ekki máli.
Mestu skiptir að Eva er á launum sem Evrópuþingmaður við að framfylgja stefnu síns flokks. Það að mörgum líki málflutningurinn í dag, þýðir ekki að næsta barátta Evu þyki henta hagsmunum Íslands jafn vel.
Í sjálfu sér er allt í lagi að velta fyrir sér hvort aðkoma hennar sé góð eða slæm, en að búa til helgimynd af konunni og láta sem sérleg ást á Íslandi ráði orðum hennar og æði, er glórulaust.
Fyrst og síðast má gagnrýna málstað hennar harkalega - og verja af sömu hörku.
Sjálfur á ég í vandræðum með þetta, því þó græningjar séu vissulega að notfæra sér viðkvæmt ástand á Íslandi, eru þeir að gera það af ágætri ástæðu.
Með framtíðarhagsmuni Evrópu í huga.
Furl
Facebook
"Liepitz hikar ekki við að ýkja og hallar jafnvel réttu máli."
Þetta eru fullyrðingar sem þarf að rökstyðja, eigi þær að vera innlegg í einhvrja umræðu.