Heim | Samband | Leit | Höfundur
Appelsínugular og grænar byltingar
09/02 2010 00:52
Tags:
Margt bendir til þess blóð muni renna í Íran á fimmtudag, en þá rennur upp 22. dagur Bahman-mánaðar og hefðbundið að landsmenn haldi upp á afmæli hins íslamska lýðveldis.  Hátíðarhöld verða þó varla áberandi í þetta sinn.
Samkvæmt LA Times munu allt að þrjár milljónir manna mótmæla í Tehran; stjórnvöld flytja nú stuðningsmenn til borgarinnar, en gengur hægt að smala, segir ónefndur heimildarmaður blaðsins.
Yahoo News segja hægst hafi á netsambandi í Íran vegna "bilunar" og fólki gengur illa að senda textaskilaboð í farsímum vegna "breytinga á hugbúnaði".  Allt mun þetta lagast í næstu viku. 

Eftir "hátíðarhöldin".

Tilviljun?

Á Radio Free Europe segir Golnaz Esfandiari yfirvöld í Tehran séu að skipta út ruslagámum úr járni fyrir plastgáma, en áður hafa mótmælendur kveikt í járngámunum og notað sem skjól gegn árásum lögreglu.  Einnig munu ný-uppsett hátalarakerfi vinna gegn slagorðum meðlima grænu hreyfingarinnar.
Þegar er byrjað að handtaka þekkta andófsmenn.

Observer var með ágætt yfirlit yfir forsögu málsins um helgina, ólgan þarna virðist gífurleg.  Ekki þarf mikið til að allt fari af stað og uppreisnin fái vængi.

Vikan verður þá appelsínugul og græn. 

Í Úkraínu deyr appelsínugul bylting og græn fæðist í Íran - og kannski mætti blanda stórviðburðum frá Norður-Írlandi í jöfnuna.

My parents never could agree about my type of school.
My learning was all done at home, that's why I'm such a fool.
They've both passed on, God rest 'em, but left me caught between
That awful color problem of the Orange and the Green.
(The Orange and The Green; írskt þjóðlag)
 
Gagnrýni (2)
1 09/02 2010 10:52
Hafsteinn
Það er áhugavert að fylgjast með atburðum í Íran og atburðir geta þróast mað óvæntum hætti. Undirrót óánægju er gífurleg spilling meðal klerkastéttarinnar. Trúarleiðtogar og siðferðisfyrirmyndir shitamúslima eru á kafi í gróðrabraski og stinga olíugróðanum í eigin vasa. Skrítið hvað vald spillir.
2 10/02 2010 13:42
L
Það gerist varla neitt merkilegt í þessum heimi nema það þjóni hagsmunum einhvers.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
The future of global banking: government resources used to create winners in the race for financial supremacy? http://bit.ly/5UT3U5