Heim | Samband | Leit | Höfundur
Brown - Cameron: bilið minnkar
01/03 2010 01:08
Samkvæmt nýjustu fylgiskönnun YouGov gæti Gordon Brown orðið næsti forsætisráðherra Breta.  Aftur.  Tveir stærstu flokkarnir eru nær hvor öðrum en þeir hafa verið í tvö ár. 

Cameron á erfitt þessa dagana; kjósendur eru að missa trú á flokknum og innanflokksátök eru vegna stefnubreytinga sem mælast misvel fyrir.  Cameron virkar ekki sannfærandi.

Undarlegt er þó að Verkamannaflokkurinn sé á uppleið.  Síðasta vika var full af viðkvæmum málum, sér í lagi fyrir Brown, sem maður hefði haldið myndu skila sér í einhverju falli.  En svo var ekki.

Frjálslyndir demókratar mælast á svipuðum stað og síðustu vikur - eða í 17%.

Nú bíður maður spenntur eftir kappræðunum sem búið var að lofa, en gætu gufað upp.
 
Gagnrýni (3)
1 01/03 2010 10:02
ASE
Verður að teljast áhugaverð niðurstaða, eins og þú segir þá hefur aldeilis verið nóg af viðkvæmum málum undanfarið, auk þess sem ástand efnahagsmála er óneitanlega "viðkvæmt". Væri gaman að heyra hvernig þú sérð fyrir þér efnahagslega þróun Bretlands á komandi árum.
2 01/03 2010 10:40
baldur
Ég þori varla að tjá mig um efnahagslega þróun í Bretlandi akkúrat núna :-)

Menn eru ýmist að hrópa húrra eða barma sér - og erfitt að sjá hvað er rétt. Kosningarnar munu væntanlega ekki auka flæði marktækra upplýsinga.

Ef maður horfir á erlenda spádóma og vangaveltur, sem er kannski gáfulegast á svona tímum, held ég staðan sé gríðarlega viðkvæm og ekki megi neitt út af bera.
3 01/03 2010 10:56
ASE
Nei skil það reyndar vel :-) Persónulega á erfitt með að sjá þetta alveg ganga upp, eins og segir, má ekki mikið, nú eða bara neitt, út af bera!

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections